„Það er margt að gerast hjá okkur,“ segir Björn S. Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, þar sem mikil uppbygging hefur verið undanfarin misseri. Björn S. Lárusson, sveitarstjóri Langnesbyggðar. Mynd/Aðsend Hæst ber í þeim efnum framkvæmdir á vegum Ísfélagsins á Þórshöfn, sem Björn kveður ganga mjög vel. „Við erum að bíða eftir að samgönguáætlun verði samþykkt þannig að við getum haldið áfram með hafnarframkvæmdir,“ segir Björn. „Við bjuggum til 4.200 fermetra fyllingu í höfninni og Ísfélagið byggði þar stóran frystiklefa, þann stærsta á landinu. Þannig að Ísfélagið er ekkert á leiðinni héðan í burtu.“ Höfnin fyllist af skipum Þegar landfyllingin kom færðist smábátahöfnin innar í höfnina. „Við þurfum að gera trébryggju meðfram þessari fyllingu, búa til nýja, öruggari aðkomu að höfninni og lengja hafnargarðinn því að höfnin fyllist af skipum á loðnuvertíð og öðru þegar það er uppskipun og útskipun,“ segir Björn. Undrast gríðarmikil umsvif Að sögn Björns hafa gestir sem heimsótt hafa Þórshöfn undanfarið ár tekið eftir uppbyggingunni í bænum. „Menn undrast gríðarmikil umsvif sem eru hér miðað við til dæmis Vopnafjörð, Kópasker, Raufarhöfn og fleiri staði,“ segir hann. Meðal þess sem fylgt hefur þessum auknu umsvifum er bygging nýs íbúðarhúsnæðis. „Við erum búin að byggja núna níu íbúðir á aðeins tveimur árum. Það hafði ekkert verið byggt hér síðan 2010,“ segir Björn. Áfram verður byggt Og frekari uppbygging er fram undan að sögn Björns, sem kveður Brák ætla að byggja fjórar íbúðir í viðbót í raðhúsi. Brák er leigufélag sem byggir utan höfuðborgarsvæðisins. „Það var eitt af meginmarkmiðum sveitarstjórnarinnar sem tók við 2022 að fara í nýbyggingar á húsnæði. Við vorum með lóðir í bænum sem voru lausar við götur sem voru tilbúnar þar sem hús höfðu fokið, brunnið eða verið flutt í burtu,“ segir Björn. Lóðirnar ruku flestar út Sveitarstjórnin ákvað að því er Björn segir að úthluta þessum lóðum án þess að innheimta gatnagerðargjöld heldur aðeins tengigjöld upp á um þrjú hundruð þúsund krónur. „Þessar lóðir ruku flestar út, við eigum aðeins tvær eftir,“ segir hann. Spurður hverjir það séu sem byggt hafi þessar lóðir segir Björn að byggingameistari á staðnum hafi riðið á vaðið með byggingu tveggja húsa. Leigðu eitt húsið undir skólahald „Sveitarfélagið keypti eitt hús af honum sem framtíðarbústað sveitarstjóra. Hann ætlaði að selja hitt húsið en við tókum það á leigu til þess að hýsa hluta af skólanum út af myglu sem kom þar upp. Síðan eru einstaklingar að byggja auk þess sem Brák byggði fjögurra íbúða raðhús. Það leigðist strax út,“ segir sveitarstjórinn í Langanesbyggð.