Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2026 | 8:01 | Uppfært 8:53 Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mbl.is/Eggert Jóhannesson Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki „Við verðum að hafa það í huga að meirihluti starfsmanna ríkisins er framlínufólk sem starfar undir gríðarlegu álagi. Áherslan þarf því að vera á hvernig hægt sé að laða fólk til starfa, tryggja starfsánægju, auka afköst og bæta þjónustu í stað þess að setja fókusinn á hvernig hægt sé að losa sig við fólk.“ Þetta segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, en samtök launamanna hjá hinu opinbera birtu heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í gær þar sem fjármálaráðherra er send kveðja með tafarlausu uppsagnarbréfi. Tilefni auglýsingarinnar er frumvarpsdrög fjármálaráðherra um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna, sem kynnt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Varðar réttindi allra „Uppsagnarvernd eru réttindi okkar fólks á vinnumarkaði eins og í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við og þessi auglýsing er til að kjarna það hvaða áhrif það hefði ef áminningarskyldan verður afnumin.“ En er ekki ástæða fyrir því að verið sér að breyta þessum reglum því opinberir starfsmenn njóta meira atvinnuöryggis en gerist á almennum launamarkaði? „Ef við horfum út fyrir landsteinana þá tíðkast svona uppsagnarvernd bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði og ef við horfum til mannauðsstjórnunar þá gerir hún ráð fyrir einhvers konar stigmögnun innan samtals við starfsfólk á vinnustaðnum. Áminningarskyldan varðar réttindi allra ríkisstarfsmanna að því leyti að þetta er leið til að fyrirbyggja ómálefnalegar og óréttmætar uppsagnir. Með þessu er verið að reyna að fyrirbyggja klíkuskap, geðþótta- eða óttastjórnun og þess vegna eru þetta réttindi sem við stöndum vörð um.“ Spurð hvernig kerfið virki núna og hvað þurfi margar áminningar til áður en til uppsagnar kemur segir Sonja að misskilnings gæti um að það þurfi þrjár áminningar áður en til uppsagnar kemur. „Það er ekki þannig. Ef starfsmaður brýtur af sér í starfi þá er hægt að veita áminningu og gefa viðkomandi tækifæri til að bæta ráð sitt. Svo ef hann brýtur af sér aftur þá getur komið til uppsagnar. Aðalatriðið er að þetta er vörn gegn óréttlæti og það er verið að tryggja faglega gagnsæja málsmeðferð í málum starfsmanna.“ Er algengt að þessu úrræði sé beitt? „Það er ekki til tölfræði um það, en innan BSRB sem telur 19 stéttarfélög þá hefur þetta verið mismikið eftir atvinnurekendum. Þetta er algengt hjá lögreglunni, en það má segja að þetta úrræði sé frekar notað hjá sveitarfélögum en hjá ríkinu og við finnum fyrir því að vegna þessarar umræðu allrar er stóraukning í því að áminningar eru veittar,“ segir Sonja og leggur áherslu á að það sé alls ekki verið að reyna verjast því að gripið sé til viðeigandi úrræða ef fólk stendur sig ekki í vinnu. Afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna Fjármálaráherra hefur lagt fram frumvarp um afnám áminningarskyldu. BSRB, Kennarasambandið og Félag hjúkrunarfræðinga mótmæltu með því að senda fjármálaráðherra uppsagnarbréf í formi auglýsingar. Fáðu aðgang að þessari grein Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn. Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar. – það er ókeypis og án skuldbindingar. Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Jamaíka og Bólivía skrefi nær HM sæti Vara við árásum á hótel á svæðinu Heimir: „Finnum aðeins fyrir sársauka“ Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Mohamed Salah bjóst við meiri áhuga Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórfelld árleg hækkun gjalda Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Yfirgefin ökutæki torvelduðu snjómokstur Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Stórfelld árleg hækkun gjalda Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Bubbi spáir hruni Spotify Minnihluti félaga í FA vill halda áfram viðræðum Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Jamaíka og Bólivía skrefi nær HM sæti Vara við árásum á hótel á svæðinu Heimir: „Finnum aðeins fyrir sársauka“ Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Mohamed Salah bjóst við meiri áhuga Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Stórfelld árleg hækkun gjalda Geta ekki sagt „full og varanleg“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Stórfelld árleg hækkun gjalda Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Bubbi spáir hruni Spotify Minnihluti félaga í FA vill halda áfram viðræðum Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article