Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast

  • What: Kemi and Fálkinn Ísmar announce merger
  • Impact: Consolidation in the Icelandic industrial equipment sector
Read Full Article →

Hluthafar Kemi og Fálkans Ísmars hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna. Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakannana hjá báðum félögum. Samanlögð velt 6 milljarðar Félögin starfa bæði á fyrirtækjamarkaði sem þjóna breiðum hópi viðskiptavina á sviði iðnaðar í íslensku samfélagi. Kjarninn í starfsemi Fálkans Ísmars er sala og þjónusta á tækni-, raf- og vélbúnaði m.a. til verktaka, gagnavera, sjávarútvegs- og eldisfyrirtækja, opinberra aðila,orkufyrirtækja, stóriðju og verkstæða. Kemi leggur áherslu á valda vöruflokka s.s. olíu- og efnavörur, bílavarahluti, öryggisvörur, landbúnaðarvörur, verkfæri og tæki ásamt því að vera umsvifamikið í innflutningi á bílrúðum og reka 2 bílrúðuverkstæði undir merkjum Poulsen. Samanlögð velta Kemi og Fálkans Ísmars var tæplega 6 milljarðar króna árið 2025 og hjá sameinuðu félagi munu starfa tæplega 100 manns. Bæði félög hafa vaxið töluvert á undanförnum árum með innri og ytri vexti. Fálkinn og Ísmar sameinuðust undir heitinu Fálkinn Ísmar árið 2021 og reksturinn styrktist enn frekar á sviði vélbúnaðar með kaupum á Iðnvélum árið 2023. Velta Fálkans Ísmars nam rúmum 2,8 milljörðum króna og hagnaður 200 milljónum árið 2024, samkvæmt síðasta ársreikningi. Sjá einnig Keyptu Iðnvélar á 180 milljónir Kemi hafði þrefaldast að stærð frá árinu 2019 þegar félagið keypti rekstur Poulsen árið 2022 og hefur reksturinn haldið áfram að vaxa síðan. Velta Kemi nam 3 milljörðum króna og hagnaður 170 milljónum árið 2025, samkvæmt nýjum ársreikningi „Þekking og reynsla starfsfólks hefur verið lykillinn að velgengni beggja félaga síðustu ár og verður áfram grunnurinn að enn frekari árangri hjá sameinuðu félagi. Sameiningin mun skapa tækifæri til að efla sölustarf og útvíkka vöruframboð með það að markmiði að byggja upp leiðandi sölu- og þjónustufyrirtæki með rekstrar- og fjárfestingavörur fyrir íslenskan iðnað,” segir Hermann Guðmundsson , forstjóri Kemi, sem verður forstjóri yfir sameinuðu félagi. Starfsemi Kemi verður áfram á Tunguhálsi 10, Reykjavík og starfsemi Fálkans Ísmars á Dalvegi 10-14, Kópavogi. Bjarni Ármansson meirihlutaeigandi Sameinað félag verður í eigu Sjávarsýnar, Hermanns Guðmundssonar og Freyju framtakssjóðs. Sjávarsýn, fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar, á 55% hlut í Kemi og 51% hlut í Fálkanum Ísmar. H-Invest, félag Hermanns á 45% hlut í Kemi. Freyja framtakssjóður, sem er í stýringu hjá Kviku eignastýringu, á 49% hlut í Fálkanum Ísmar.

Share this article