Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sprotafyrirtæki kynna grænar lausnir

Read Full Article →

Hringiða, sex vikna viðskiptahraðall Klak fyrir sprotafyrirtæki með grænar lausnir, hefst formlega þann 7. apríl nk. Að þessu sinni voru sjö teymi valin til þátttöku úr hópi fjölmargra sterkra umsókna. Á næstu vikum munu teymin þróa lausnir sínar áfram og undirbúa þær fyrir markað með aðstoð frá Klak, reyndum mentorum og sérfræðingum úr atvinnulífinu. Markmið Hringiðu er að styðja við uppbyggingu fyrirtækja sem byggja á grænum lausnum og sjálfbærni. Hraðallinn er mikilvægur vettvangur fyrir frumkvöðla sem vinna að nýsköpun sem styður við hringrásarhagkerfið, dregur úr sóun, bætir nýtingu auðlinda og stuðlar að sjálfbærri framtíð. Sjá einnig Teymin sem taka þátt í Hringiðu í ár Þátttakendur fá aðgang að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissa þjálfun í uppbyggingu sprotafyrirtækja. Hraðlinum lýkur með fjárfestadegi 20. maí þar sem verkefnin verða kynnt fyrir fjárfestum og öðrum lykilaðilum í grænu og sjálfbæru viðskiptalífi. Bakhjarlar Hringiðu eru Terra, Faxaflóahafnir, Reykjavíkurborg, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Samtök iðnaðarins. Teymin í Hringiðu 2026 eru: Araxni – Vefur nýja framtíð úr líftækniframleiddu köngulóarsilki í stað plasts fyrir sjávarútveg, textíliðnað og fleiri geira. E-LÍSA – Hugbúnaðarlausn sem dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og tryggir að borholur skili áreiðanlegum og fyrirsjáanlegum afköstum. IORDEN – Hagkvæmur og sjálfvirkur gæðastjóri sem gerir smærri matvælaframleiðendum kleift að halda utan um sína framleiðslu á einum stað. Loopable – Lokar hringnum með því að tæta ónýtan textíl og breyta honum í hágæða prjónagarn og fyllingarefni fyrir húsbúnað og skapar ný verðmæti úr efnum sem annars færu til spillis. Ratatag – Tengir saman eigendur og finnendur týndra muna með einföldu QR-kóðakerfi til að lengja líftíma fatnaðar og búnaðar. Soil Lagoon – Áformar byggingu fyrstu jarðvegshreinsistöðvar Íslands sem nýtir jarðhitavatn til að hreinsa mengaðan jarðveg. Thermal Beets Records – Framleiðir sjálfbærar vínylplötur úr sykurrófum í stað hefðbundins PVC-plasts með íslenskri grænni orku

Share this article