Viðskipti | mbl | 27.3.2026 | 18:45 Mun á endanum lenda á almenningi Benedikt segir ummæli Daða Más um hærri skatta hafa komið sér á óvart. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Aðsend mynd Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Kemur gríðarlega á óvart“ Vond tíðindi en toppnum vonandi náð „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ » Fleiri tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ „Óábyrgt að vera að boða svona breytingar“ „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin » Fleiri tengdar fréttir Fyrirhuguð skattahækkun á fjármálafyrirtæki mun á endanum lenda á almenningi, að sögn Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Þetta segir hann, spurður út í ummæli Daða Más Kristóferssonar í Morgunblaðinu. Þar var fjármálaráðherrann spurður hvort að í fjármálaáætlun væri boðuð hækkun á bankaskatti og svaraði hann að verið væri að boða leiðir til að skattleggja þann hagnað sem hefði orðið til vegna verðbólgunnar, sem hefði verið meiri en stjórnvöld reiknuðu með. Frétt af mbl.is Arion banki hagnaðist um 30,6 milljarða „Einhver greiðir fyrir þetta” „Auðvitað eru fordæmi fyrir því að skattar hafa verið enn hærri á þessa atvinnugrein en það má ekki gleyma því að einhver greiðir fyrir þetta. Annað hvort eru það hluthafar eða viðskiptavinir og líklega í einhverju samblandi,” segir Benedikt og bendir á að hluthafarnir séu mestmegnis almenningur í landinu í gegnum lífeyrissjóði, beint eignarhald eða eignarhald ríkisins í Landsbankanum. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. Ljósmynd/Aðsend Tvö- til þrefalt hærri skattar Bankastjórinn nefnir að skattar á íslenska fjármálakerfið séu nú þegar mjög háir. Íslensk fjármálafyrirtæki greiði tvö- til þrefalt hærri skatta á sínar áhættuvegnu eignir en gengur og gerist að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins og á hinum Norðurlöndunum. Því sé arðsemi eiginfjár íslenska fjármálakerfisins undir meðalarðsemi bankakerfa annarra Evrópulanda. Bendir hann á að með teknu tilliti til verðbólgu sé raunarðsemi hérlendis ein sú lægsta í Evrópu. Frétt af mbl.is „Kemur gríðarlega á óvart“ Myndi hækka Íslandsálagið Benedikt nefnir að í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið hafi verið talað um að starfsumhverfi fjármálafyrirtækja leiddi af sér álag á útlánavexti, eða svokallað Íslandsálag. Sérstakar álögur og skattar eigi einungis við um íslensk fjármálafyrirtæki sem kunni að valda því að útlánavextir séu einu prósentustigi hærri en annars væri ef starfsumhverfið væri sambærilegt og annars staðar í Evrópu. Ljóst sé að fyrirhuguð aukaskattlagning stjórnvalda muni hækka það álag. „Auðvitað munu hluthafar að einhverju leyti taka þetta á sig, sem veldur því að raunarðsemi verður enn lakari, sem var nú lág fyrir.” Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór Hélt að sjónarmiðin hefðu komist vel til skila Spurður segir Benedikt ummæli Daða Más um hærri skatta hafa komið sér á óvart . Arion banki hafi á vettvangi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu bent á sértæka skattlagningu á íslenska fjármálakerfið. Frétt af mbl.is Sértækar álögur yfir 21 milljarður króna „Maður hélt að þau sjónarmið hefðu komist vel til skila en þegar það þarf að afla skatttekna til þess að ná hallalausum fjárlögum virðist vera auðvelt að sækja þær í fjármálakerfið.” Þrjár mögulegar útfærslur Benedikt telur þrjá möguleika fyrir hendi varðandi útfærslu stjórnvalda á skattahækkuninni. Fjármálakerfið borgi í dag hærri tekjuskatt en önnur fyrirtæki í landinu og að hægt sé að hækka hann enn frekar. Einnig væri hægt að hækka bankaskattinn, sem í dag sé einn sá hæsti í Evrópu, eða þá að hækka sérstakan skatt á laun starfsmanna fjármálafyrirtækja. Hann sé greiddur sem viðbótartryggingagjald á laun. Arion banki. mbl.is/Eggert Jóhannesson Skekkja skilar fjármálakerfinu meiri tekjum Spurður nánar út í orð ráðherra um að skattleggja þann hagnað sem hafi orðið til vegna verðbólgunnar segir Benedikt að misvægi í eignum og skuldum bankanna fylgi áhætta og aukin eiginfjárbinding. „Við náum ekki á skuldahlið okkar að stofna til verðtryggðra skulda með sama hætti og þær verðtryggðu eignir sem hafa byggst upp, þegar m.a. íbúðalán fóru í auknum mæli úr óverðtryggðu formi yfir í verðtryggt form. Það er ljóst að þessi skekkja er að skila fjármálakerfinu meiri tekjum það sem af er þessu ári en í fyrra en raunarðsemi er kannski ekki að hreyfast með sama hætti.” Þörf á einhvers konar þjóðarsátt Fyrr í vikunni var tilkynnt um að ársverðbólgan hefði aukist úr 5,2% í 5,4% og hefur hún ekki verið hærri í eitt og hálft ár. Spurður kveðst bankastjórinn hafa áhyggjur af aukinni verðbólgu. Frétt af mbl.is Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Peningar. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Eldra fólk á Íslandi sem man verðbólgutímana á áttunda og níunda áratugnum veit hversu skaðlegt viðvarandi hátt verðbólgustig er. Það hefur neikvæð áhrif á svo margt í okkar hagkerfi. Það hlýtur að vera okkar aðalmarkmið að reyna að ná verðbólgunni niður að verðbólgumarkmiði. Það er sameiginlegt átak og ég held að það þurfi einhvers konar þjóðarsátt um það eins og við gerðum 1990,” svarar hann. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Kemur gríðarlega á óvart“ Vond tíðindi en toppnum vonandi náð „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ » Fleiri tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ „Óábyrgt að vera að boða svona breytingar“ „Við styðjum ekki aðgerðir af þessu tagi“ 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Slóvakar leysa íslenskan læknavanda Sigurður Már Jónsson Hvað setti Gaza-stríðið af stað? Fleira áhugavert „Kemur gríðarlega á óvart“ Heuermann hyggst játa sök Aðeins hægt að leggja ef bókað er fyrir fram Katrín er með marga hatta Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Kemur gríðarlega á óvart“ Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Evrópa aftarlega á merinni Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Ellefu milljarðar gætu núllast út Medalia sækir fram í heilbrigðistækni Lindex opnar í stað Next í Kringlunni Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Lindex opnar í stað Next í Kringlunni Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Nova og Rafal stofna hátæknifélag Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi „Kemur gríðarlega á óvart“ Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Landsbankinn hækkar vexti Kristrún á skjön við Seðlabanka Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Pistlar » Sigurður Már Jónsson Slóvakar leysa íslenskan læknavanda Sigurður Már Jónsson Hvað setti Gaza-stríðið af stað? Fleira áhugavert Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Aðeins hægt að leggja ef bókað er fyrir fram Heuermann hyggst játa sök Úthugsuð árás Bandaríkjanna Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Kemur gríðarlega á óvart“ Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Evrópa aftarlega á merinni Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Ellefu milljarðar gætu núllast út Medalia sækir fram í heilbrigðistækni Lindex opnar í stað Next í Kringlunni Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Lindex opnar í stað Next í Kringlunni Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Nova og Rafal stofna hátæknifélag Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi „Kemur gríðarlega á óvart“ Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Landsbankinn hækkar vexti Kristrún á skjön við Seðlabanka Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst