Viðskipti | Morgunblaðið | 28.3.2026 | 12:32 Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir raunarðsemi bankanna mjög góða, sem gengur þvert á orð bankastjóra Íslandsbanka og Arion banka sem segja hana með þeirri minnstu meðal evrópskra banka. Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ Vond tíðindi en toppnum vonandi náð „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ » Fleiri tengdar fréttir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra gerir ráð fyrir því að neytendur muni bera einhverjar byrðar af boðaðri hækkun á bankaskatti , en segir ómögulegt að spá um hvernig það skiptist milli neytenda og hluthafa bankanna. Hann hefur ekki áhyggjur af því að tímasetning hækkunarinnar, tæpu ári eftir að ríkið losaði um eignarhlut sinn í Íslandsbanka, dragi úr áhuga erlendra fjárfesta, enda hafi arðsemi þeirra verið góð. Hækkun bankaskattsins er boðuð í nýkynntri þingsályktunartillögu að fjármálaáætlun vegna áranna 2027-2031. „Ein af margþættum aðgerðum til þess að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs felst í því að afla viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum en fyrirtæki í þeim geira greiða sérstaka skatta sem lagðir eru á skuldir, laun og hagnað,“ segir í áætluninni. Spurður nánar út í þessi áform sagði Daði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann væri að skoða leiðir til þess að skattleggja þann hagnað sem hefði orðið til vegna verðbólgunnar, sem hefur verið meiri en hann reiknaði með. Arðsemi bankanna „mjög góð“ Eins og sjá má sjá á síðum blaðsins eru bankastjórar forviða yfir áformunum. Blaðamaður settist niður með fjármálaráðherra í þinghúsinu í gær til að fá hans sýn á gagnrýnina. Bent er á að skattar á íslenska fjármálakerfið séu nú þegar mjög háir í alþjóðlegum samanburði. Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka fullyrðir að þeir séu með þeim hæstu í Evrópu og Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka bendir á að raunarðsemi íslenskra banka sé fyrir vikið mjög lítil. „Arðsemi þeirra hefur samt verið mjög góð og betri en í nágrannalöndunum,“ segir Daði. Ekki raunarðsemi [það er arðsemi að teknu tilliti til verðbólgu]? „Jú. Það er þannig að verðbólgan skapar svigrúm og það er auðvitað ákaflega óheppilegt.“ Vaxtakjör gætu versnað Væri ekki betra að slíkt svigrúm nýttist þá til að lækka vexti, skilaði sér til neytenda eða hluthafa sem eru líka almenningur orðið í gegnum lífeyrissjóðina, frekar en að ríkissjóður hirti það til sín? „Ef það væri raunin, þá væri það auðvitað mjög gleðilegt.“ Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið er talað um að þetta rekstrarumhverfi leiði af sér álag á útlánavexti, svonefnt Íslandsálag, hjá fjármálafyrirtækjum. Þessi skattlagning kemur óhjákvæmilega til með að auka það álag. Er ekki fyrirséð að þessi skattlagning leiði til óhagstæðari vaxtakjara? „Það er auðvitað þannig að á öllum mörkuðum færast svona breytingar alltaf einhvern veginn á milli og er sem sagt deilt milli fyrirtækja og einstaklinga í takt við teygni vörunnar sem verið er að selja. Það sama mun örugglega eiga við í þessu tilfelli líka.“ Er það á almenning leggjandi að grípa til skattahækkana sem geta leitt til þess að vextirnir, sem nú eru með himinskautum og allir bíða í ofvæni eftir að lækki, þvert á móti hækki? „Eins og ég segi. Skattar sem lagðir eru á með þessum hætti dreifast á fyrirtæki og neytendur og það er ekki gott að giska á í hvaða hlutföllum.“ Pólitísk óvissa alls staðar Ríkið er nýbúið að losa um það sem eftir stóð af eignarhlut þess í Íslandsbanka. Meðal þess sem bankastjórarnir gagnrýna er að þetta auki á pólitíska óvissu bankanna, sérstaklega gagnvart erlendum fjárfestum. Hvernig horfir það við þér? „Það er auðvitað alls staðar pólitísk óvissa. Þessu tæki hefur verið beitt áður í svipuðum tilgangi. Ég sé ekki merki þess í afkomu bankanna að það ætti endilega að draga úr áhuga erlendra fjárfesta enda er afkoma þeirra góð.“ Einhver hefði fyrir fram giskað á að þú værir frekar maður til þess að lækka bankaskattinn en hækka hann. „Ég hef auðvitað mikinn áhuga á því að stilla rekstri ríkisins í hóf, enda ef fólk les fjármálaáætlunina sér það þess greinileg merki að ég er að skera niður kostnað, en svigrúm verður að vera fyrir hendi. Ekki tökum við velferðina að láni,“ segir Daði að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ Vond tíðindi en toppnum vonandi náð „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Douglas Murray og dauðakúltúr Hamas Sigurður Már Jónsson Slóvakar leysa íslenskan læknavanda Fleira áhugavert Eru ennþá taplausir í Gettu betur Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ Eiginfjárbinding mjög há Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Evrópa aftarlega á merinni 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Bauhaus og Síðuskóli hlutu umhverfisverðlaun Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Vond tíðindi en toppnum vonandi náð „Kemur gríðarlega á óvart“ Mun á endanum lenda á almenningi Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Evrópa aftarlega á merinni Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Ellefu milljarðar gætu núllast út Eiginfjárbinding mjög há Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi „Kemur gríðarlega á óvart“ Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Landsbankinn hækkar vexti Kristrún á skjön við Seðlabanka Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Pistlar » Sigurður Már Jónsson Douglas Murray og dauðakúltúr Hamas Sigurður Már Jónsson Slóvakar leysa íslenskan læknavanda Fleira áhugavert Betri fjölskyldustefna mikilvægust Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Það er spurning hvar maður lendir Mun á endanum lenda á almenningi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ Eiginfjárbinding mjög há Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Evrópa aftarlega á merinni 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Bauhaus og Síðuskóli hlutu umhverfisverðlaun Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Vond tíðindi en toppnum vonandi náð „Kemur gríðarlega á óvart“ Mun á endanum lenda á almenningi Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi Evrópa aftarlega á merinni Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Ellefu milljarðar gætu núllast út Eiginfjárbinding mjög há Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út 30% fyrirtækja svindluðu á Svörtum föstudegi „Kemur gríðarlega á óvart“ Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Landsbankinn hækkar vexti Kristrún á skjön við Seðlabanka Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk