Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Kviku, sagði í ræðu á aðalfundi bankans á dögunum að gullhúðun íslenskra stjórnvalda á reglum um breytileg starfskjör á fjármálamarkaði hér á landi væri skaðleg og löngu tímabært væri að sömu reglur giltu hér á landi og í öðrum Evrópuríkjum. Sem kunnugt er, þá er íslenskum fjármálafyrirtækjum heimilt að greiða 25% af árstekjum starfsmanns í kaupauka en hlutfallið er 100% í ríkjum Evrópusambandsins. Þessi skoðun Sigurðar féll í grýttan jarðveg hjá valinkunnum sleggjum á borð við Egil Helgason og Signýju Sigurðardóttur. Sú síðarnefnda er í Viðreisn og bauð sig meðal annars fram í oddvitasæti flokksins í Reykjavík á dögunum og var hafnað. Sökum þessa velta hrafnarnir fyrir sér hvort Signý noti ekki áhrif sín innan Viðreisnar og beiti sér fyrir því að eitt af samningsmarkmiðum Íslands í aðlögunarviðræðunum við ESB verði að fá varanlega undanþágu frá reglunum sem gilda um kaupaukareglur á fjármálamarkaði í aðildarríkjunum. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi grein birtist fyrst í blaðinu sem kom út 25. mars 2026.