- What: Fraud related to new EU company law rules in the budget.
- Impact: Potential financial fraud involving material transactions reporting.
Innlent | Morgunblaðið | 23.2.2026 | 11:50 Gullhúðun í nýju frumvarpi Hanna Katrín Friðriksson vill ganga lengra en tíðkast í Evrópu við skilgreiningu „mikilvægra viðskipta“ skráðra félaga við tengda aðila. mbl.is/Karítas Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Drög Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra að frumvarpi um breytingu á lögum um hlutafélög felur í sér gullhúðaða innleiðingu breytingartilskipunar frá Evrópusambandinu. Gullhúðun felur það í sér að stjórnvöld ganga lengra við innleiðingu regluverks og setja íþyngjandi ákvæði umfram þær lágmarkskröfur sem Evrópuregluverkið gerir. Í einu ákvæði frumvarpsdraganna eru mikilvæg viðskipti (e. material transactions) skráðs hlutafélags við tengda aðila skilgreind þannig að gangvirði þeirra nemi 5% eða meira af heildareignum félags. Fram kemur að við val á þessu viðmiði hafi verið litið til framkvæmdar í öðrum aðildarríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þótt algengt sé að miða við 10% af heildareignum er í frumvarpsdrögunum lagt til að miða við lægra hlutfall, þ.e. 5%. Það er sagt gert með hliðsjón af smæð íslenska markaðarins og til að tryggja öfluga vernd minnihlutahafa. Inntak ákvæðisins er að stjórn þurfi að samþykkja mikilvæg viðskipti áður en þau eru framkvæmd. Formaður andvígur gullhúðun Gullhúðun í íslenskri löggjöf hefur verið harðlega gagnrýnd. Þar á meðal hefur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og flokkssystir Hönnu Katrínar, látið til sín taka um árabil. „Þessi tilhneiging íslenskra stjórnvalda að ganga lengra í að þrengja að almenningi og fyrirtækjum er varhugaverð. Íþyngjandi og óþarflega flókið regluverk veldur bæði töfum og auknum kostnaði á hverju einasta stigi samfélagsins og atvinnulífsins, og skilar sér að lokum í auknum kostnaði fyrir heimili landsins. Að aflétta þessum auknu byrðum er því mikið hagsmunamál,“ skrifaði Þorgerður Katrín í janúar árið 2024. Í fyrra svaraði hún fyrirspurn í þinginu er varðaði gullhúðun þannig að mikilvægt væri að gefa henni sérstakan gaum, „því heimasmíðaðar viðbótarreglur geta skaðað samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja á innri markaði EES og þar með komið niður á viðskiptum þeirra og jafnframt niður á neytendum“. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fór vel á með Birki og Guardiola Setja í gang vatnsaflsvirkjun við Langadalsá Sameiginlega framboðið nefnt Vinstrið Messi missti stjórn á skapi sínu Setja viðskiptasamning við Bandaríkin á ís Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið Gullhúðun í nýju frumvarpi Ekkert liggur fyrir um eldsupptök Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Fór vel á með Birki og Guardiola Setja í gang vatnsaflsvirkjun við Langadalsá Sameiginlega framboðið nefnt Vinstrið Messi missti stjórn á skapi sínu Setja viðskiptasamning við Bandaríkin á ís Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Gullhúðun í nýju frumvarpi Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka