- What: Vantrausttillagan (Network Traffic Authority) is demanding against a student council's request regarding network traffic regulations.
- Impact: Regulatory dispute affects the student council's proposed actions.
Innlent | mbl | 24.2.2026 | 23:35 Vantrausttillagan krafs í bakkann Röskvuliðar greiða atkvæði gegn frestunartillögu Vökuliða í dag. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Röskva, samtök félagshyggjufólks innan Háskóla Íslands, telur ekki viðunandi að stúdentaráðsliðar Vöku hafi frestað afgreiðslu eigin vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands. Röskva sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem m.a. kemur fram að slíkt sýni fram á ábyrgðarleysi meirihluta stúdentaráðs. Frétt af mbl.is Gefa rektor tveggja vikna frest Bókanir gegn báðum tillögum „Röskva lýsti yfir vilja til að tillagan yrði tekin efnislega fyrir á fundinum og lögðu fulltrúar hreyfingarinnar fram bókanir bæði gegn því að tillögunni yrði frestað og vantrauststillögunni sjálfri. Stúdentaráðsliðar Vöku sögðust ekki vilja að rektor víki úr embætti þrátt fyrir að hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur henni. Stúdentaráðsliðar Vöku segja ástæðu frestunartillögunnar vera að þau ætla að gefa rektor tvær vikur til þess að falla frá áformum um hækkun skrásetningargjaldsins eftir að fundur með henni leiddi til þeirrar uppgötvunar að þau gætu átt í samstarfi við hana,“ segir í yfirlýsingu Röskvu. Frétt af mbl.is Ítrekar vilja til samstarfs við stúdenta Þarf að gera úrbætur á tillögunni Röskva telur að gera þurfi úrbætur á tillögunni en í henni sé farið með rangt mál um að áfrýjunarnefnd háskólanema hafi ekki úrskurðað um málið. Hið rétta sé að úrskurður nefndarinnar hafi verið kynntur fyrir háskólaráði í desember á síðasta ári og Röskva sent kvörtun um lögmæti skrásetningargjaldsins til umboðsmanns Alþingis í kjölfar hans. Í bókun stúdentaráðsliða Röskvu undir fundarliðnum „Tillaga að Stúdentaráð lýsi yfir vantrausti á hendur rektor Háskóla Íslands“ kemur fram að vantrauststillaga Vöku sé tilraun til að klóra í bakkann í kjölfar aðgerðarleysis réttindaskrifstofu stúdentaráðs, með Vöku í meirihluta. Ekkert hafi heyrst frá skrifstofu stúdentaráðs opinberlega í aðdraganda og eftirleik þess að háskólaráð ákvað að leitast eftir því við ráðherra að hækka skrásetningargjaldið. Skrifstofa stúdentaráðs hafi verið þögul þegar frumvarp um hækkunina var til meðferðar hjá Alþingi og hafi ekki sent inn umsögn um frumvarpið, sem sé alvarlegur brestur á hagsmunagæslu stúdenta. „Barátta stúdentaráðs Háskóla Íslands með Vöku í meirihluta hefði þurft að hefjast fyrr og vera öflugri,“ segir í bókuninni. Frétt af mbl.is Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Bókanir Röskvuliða Bókun Ármanns Leifssonar, forseta Röskvu, um frestunartillögu Vöku á fundarliðnum „Tillaga að Stúdentaráð lýsi yfir vantrausti á hendur rektor Háskóla Íslands.“ „Stúdentaráðsliðar Vöku hafa hlaupið á sig. Þau lögðu fram vantrauststillögu á rektor byggða á röngum upplýsingum um úrskurð áfrýjunarnefndar og ætla núna að fresta umræðu um eigin tillögu sem þau hafa nú þegar farið fram með í fjölmiðlum. Upplýsingar sem fulltrúi þeirra í háskólaráði og starfsmenn skrifstofu stúdentaráðs Háskóla Íslands hefðu léttilega geta nálgast. Ármann Leifsson, forseti Röskvu. Ljósmynd/Röskva Þau fresta vantrauststillögunni vegna samtals sem þau áttu við rektor en þetta samtal hefði átt að eiga sér stað áður en lögð var fram vantrauststillaga. Með henni er samstarf og samtal við rektor sett í hættu og þar með hagsmunabarátta stúdenta í leiðinni. Vinnubrögðin sýna fram á ábyrgðarleysi og vanhæfni meirihluta Vöku, vinnubrögð sem skaða trúverðugleika Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Atburðarás undanfarna daga hefur verið leikþáttur í boði meirihluta Vöku sem þjónar ekki hagsmunum stúdenta. Hún átti kannski að þjóna Vöku í kosningabaráttu en augljóst er að sú áætlun hefur ekki gengið upp.“ Frétt af mbl.is Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Bókun stúdentaráðsliða Röskvu undir fundarliðnum „Tillaga að Stúdentaráð lýsi yfir vantrausti á hendur rektor Háskóla Íslands.“ „Röskva leggst gegn hækkun skrásetningargjaldsins. Fjármagn opinbers háskóla á ekki að koma úr vösum stúdenta. Gjaldtakan vegur að jafnræði til náms. Með Röskvu í meirihluta Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ) var tvisvar komið í veg fyrir hækkun skrásetningargjaldsins, árin 2020 og 2022, og við styðjum aðgerðir sem stuðla að því markmiði. Að lýsa yfir vantrausti á rektor er hins vegar skref í ranga átt. Vantraust felur í sér að traust til embættisaðila sé rofið og að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu. Slík tillaga verður að byggja á réttum og málefnalegum grundvelli. Annmarkar eru á þeirri tillögu sem hér liggur fyrir. Með Röskvu í meirihluta Stúdentaráðs var hafin sú vegferð að láta reyna á lögmæti gjaldsins fyrir þar til bærum stjórnvöldum. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema úrskurðaði tvívegis stúdentum í hag um að vankantar væru á innheimtu gjaldsins. Nú síðast í desember í fyrra komst áfrýjunarnefndin að því að HÍ beri ekki að endurgreiða gjaldið og hefur Röskva nú þegar brugðist við með því að senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Umrædd tillaga skilar stúdentum engu, búið er að hækka gjaldið og að rektor víki breytir engu um það. Frétt af mbl.is Hækkunin tímabær og réttmæt Vantrauststillagan er tilraun til að klóra í bakkann í kjölfar aðgerðarleysis réttindaskrifstofu SHÍ með Vöku í meirihluta. Ekkert heyrðist frá skrifstofu SHÍ opinberlega í aðdraganda og eftirleik þess að háskólaráð ákvað að leitast eftir því við ráðherra að hækka skrásetningargjaldið. Skrifstofa SHÍ var þögul þegar frumvarp um hækkunina var til meðferðar hjá Alþingi og sendi ekki inn umsögn um frumvarpið sem er alvarlegur brestur á hagsmunagæslu stúdenta. Barátta Stúdentaráðs Háskóla Íslands með Vöku í meirihluta hefði þurft að hefjast fyrr og vera öflugri. Stúdentaráðsliðar Röskvu eru óánægðir með ákvörðun rektors og háskólaráðs. Sú óánægja ein og sér dugar þó ekki til að réttlæta vantrauststillögu sem er byggð á ófullnægjandi upplýsingum og ólíkleg til að skila stúdentum nokkrum árangri. Tillagan getur ekki komið í stað markvissrar hagsmunabaráttu sem hefði þurft að eiga sér stað fyrr, þar á meðal á vettvangi skrifstofu SHÍ. Röskva telur að samstarf við rektor HÍ sé farsælli leið til að ná því markmiði að afnema eða í minnsta lagi lækka skrásetningargjöld HÍ. Röskva á sögu um farsælt samstarf við rektor Háskóla Íslands þegar kemur að undirfjármögnun háskólastigsins, enda sameiginlegir hagsmunir stúdenta og háskólans að stofnunin sé vel fjármögnuð. Rót vandans má rekja til stefnu ríkisstjórnarinnar og fjárveitingavalds Alþingis, Röskva vill beina kröftum stúdentahreyfingarinnar þangað.“ Frétt af mbl.is Dagurinn sem rektor mun fara á bak við nemendur Stúdentaráðsliðar Röskvu sem sátu fundinn auk Andra Más Tómassonar, fulltrúa Röskvu í háskólaráði. Ljósmynd/Röskva Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Wolt sýknað af kröfu sendla Vantrausttillagan krafs í bakkann Búfræðinemar dæmdir fyrir að sprengja sauð Sir David Beckham hetjan í frönsku Ölpunum Forráðamenn Liverpool að missa þolinmæðina Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Tekið á Akkilesar-hæl Rússahers Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Nýjast á mbl.is » Wolt sýknað af kröfu sendla Vantrausttillagan krafs í bakkann Búfræðinemar dæmdir fyrir að sprengja sauð Sir David Beckham hetjan í frönsku Ölpunum Forráðamenn Liverpool að missa þolinmæðina Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tekið á Akkilesar-hæl Rússahers Fjögur ár í foraði stríðsins Starmer: Við erum ekki áhorfendur að fylgjast með utan frá Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjand