Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lykillinn að árangri í starfi er að læra tungumálið

Read Full Article →

Wendill Viejo fæddist á Filippseyjum og flutti til Íslands fyrir tíu árum. Í Filippseyjum menntaði hann sig í hjúkrunarfræði og var starfandi á spítala þar þegar frænka hans benti honum á laus störf í heilbrigðisþjónustu hér á landi. Hann segir jákvætt fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi að starfsfólk hafi fjölbreyttan bakgrunn. Fleira erlent starfsfólk vinnur á heilbrigðisstofnunum en áður, hlutfallið hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Íslenska kerfið gagnast á fjölbreyttum hópi starfsfólks Á Sjúkrahúsinu á Akureyri eru rúmlega fjögur prósent starfsfólks af erlendu bergi brotin en var rúm tvö prósent árið 2022. Á Landspítalanum er hlutfall erlends starfsfólks nú um tíu prósent en var rúm sjö prósent árið 2022. Á Heilbrigðisstofnun Austurlands er hlutfallið um sextán prósent en var tæp ellefu prósent árið 2022. Lykillinn að velgengni í starfi er að læra íslensku, segir hjúkrunarfræðingur sem flutti til Íslands frá Filippseyjum fyrir tíu árum. Erlendu starfsfólki í heilbrigðisþjónustu hefur fjölgað undanfarin ár. Wendill hefur unnið sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítala í átta ár. Þar áður vann hann í tvö ár á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Hann segir lykilinn að því að ná árangri innan geirans hér á landi að læra tungumálið. Hann segir jákvætt fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi að starfsfólk hafi fjölbreyttan bakgrunn. „Þau koma með, sérstaklega erlendir hjúkrunarfræðingar, þau koma með frábæra menntun og líka sérstaka reynslu og færni sem íslenska kerfið getur gagnast á.“ Wendill segir það ekki síst öryggisins vegna sem íslenskukunnáttan sé mikilvæg. Sumir tali ekki ensku og þá geti samskiptin verið erfið. „Við erum að þjóna eða hjúkra, veikustu sjúklingum Íslands. Og ég held að það sé mikilvægt að við sem heilbrigðisstarfsfólk kunnum alveg að tala íslensku og skiljum íslensku. Þetta snýst um öryggi sjúklinganna okkar.“ Stefna Landspítalans að styðja við íslenskukennslu starfsfólks Í tungumálastefnu Landspítalans er lögð áhersla á að íslenska sé aðaltungumálið í þjónustu spítalans til að tryggja öryggi og skilvirk samskipti. Stefnan er að styðja starfsfólk af erlendum uppruna við að ná tökum á íslensku og nota íslensku í samskiptum við sjúklinga, aðstandendur og samstarfsfólk. Wendill segir mikilvægt að taka á móti erlendu starfsfólki með því að veita þeim markvissa tungumálaþjálfun og örugga aðlögun í vinnuumhverfi. Og markviss tækifæri til að þróast í starfi. „Lykillinn til að ná árangri og líka til að vaxa og þróast í starfinu er að læra tungumálið.“

Share this article