Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.3.2026 | 8:00 Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Geir Waage mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Bandaríski frjettamiðillinn Democracy Now fjallar um atburði á vettvangi dagsins: Gagnlegt hefur reynzt mjer að fletta upp á þessari umfjöllun þegar frá líður til þess að fá samhengi í atburði líðandi stundar. Í lok febrúar rjeðust Bandaríkin og Ísrael að vanda sínum á Íran í miðjum samningaviðræðum við Írana, til þess „að koma þeim á óvart“, en það var skýringin sem Trump gaf bandamönnum sínum í NATO í Evrópu á því, að þeir voru ekki látnir vita frekar en aðrir. Spánverjar voru fyrstir til þess að hafna aðild að þessu stríði; síðar hafa aðrir drattast á eftir þeim og fá bágt fyrir hjá Trump. Þarna virðist hann hafa gengið of langt. Hann hefur kúgað bandamenn Bandaríkjanna um heim allan til þess að veita milljarða dollara til sín í formi innflutningstolla: Ursula von der Leyen gekk að samningi um að ESB skyldi fjárfesta fyrir 8-9 milljarða í Bandaríkjunum gegn smávægilegri lækkun þeirra gagnvart Evrópuríkjum, auk þess sem hún lofaði frekari kaupum á gasi þaðan á þreföldu verði miðað við það sem þeir höfðu áður greitt Rússum, áður en Biden forseti ljet sprengja gasleiðslurnar í Eystrasalti. Enginn veit hvað gasverðið verður eftir því sem stríðið við Írana þroskast. Áður hafði hann þrýst bandamönnum sínum í NATO til þess að taka peninga frá almannatryggingum sínum og velferðarmálum til þess að fjárfesta í hergagnaiðnaði Bandaríkjanna, en þaðan eru flest NATO-vopnin ættuð. Þetta höfðu Íslendingar vitaskuld þegar gert öldungis óumbeðnir, enda jafnan fremstir meðal þjóða og „stórastir“. „Stóri pabbi“ hefur nú skilið við „Evrópu“, en leiðtogar þar eru „heiglar“, því þeir vilja nú ekki hlýða eins og þeir gerðu í Íraksstríðinu forðum. Þetta eru ekki góðar frjettir fyrir Evrópuleiðtogana, sem fara hrakfarir í kosningum í framhaldinu eins og Macron og Metta hafa reynt. Þau hafa farið fyrir öðrum eins og Íslendingar í fjandskap við Rússa og Írana og aðra „óvini“ Bandaríkjanna og halda því áfram þótt skilnaðurinn standi nú yfir. Fyrrverandi eiginkona gæti reynzt hagkvæm frilla síðar. Íslenzk stjórnvöld virðast nú þegar hafa komið sjer fyrir í þessu ástarsambandi upplausnarinnar: Ísland vill verða frilla frillunnar þrátt fyrir hálstakið sem Kaninn hefur á landinu vegna herverndarsamningsins og legu landsins. Ekki eru Íslendingar enn með öllu fráhverfir Ástandinu. Leiðtogar Evrópu munu seint átta sig á því, að kjósendurnir vilja ekki fórna velferðarsjóðum sínum í styrjaldir í þágu Bandaríkjanna, en Evrópuleiðtogarnir og íslenzk stjórnvöld hafa nú tekið að sjer stríð þeirra við Rússa í Úkraínu. Það þarf blint barn og vitstola til þess að sjá þetta ekki. Árás Bandaríkjanna og Ísraels þarf engum að koma á óvart. Lesley Clark, fyrrverandi hershöfðingi NATO í Evrópu 1997-2000, greindi frá því upp úr aldamótunum í samtali við Amy Goodman hjá Democracy Now, hvaða lönd það væru, sem ætti að eyðileggja á næstu sjö árum og í hvaða röð: Írak, Sýrland, Líbanon, Líbía, Sómalía, Súdan og Íran. Þrátt fyrir það, að áætlunin hafi nokkuð raskast og dregizt í tíma, liggur hún fyrir. Sjá: https://youtu.be/d-Tq7xeSwRE?si=JACYHbiz8yRFKgP6 Geir Waage, formaður Málfundafjelagsins Frelsi og fullveldi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Portúgalski eyjaklasinn sem fáir vita um Fjórfaldur heimsmeistari hótar að hætta Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Komu ketti til bjargar Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Afleit staða til að eiga við faraldur Fá ekki leyfi til að rífa braggann Um 3.500 bandarískir hermenn komnir á svæðið Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Fá ekki leyfi til að rífa braggann Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Almenningur borgar skattahækkanir „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Borgin greiddi um 14 milljónir fyrir veislur Allrólegu veðurfari spáð í dymbilvikunni Afleit staða til að eiga við faraldur Salman Rushdie fyrirgefur ekki Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Portúgalski eyjaklasinn sem fáir vita um Fjórfaldur heimsmeistari hótar að hætta Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Komu ketti til bjargar Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Fá ekki leyfi til að rífa braggann Fimm drepnir í árás á íranska hafnarborg Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Fá ekki leyfi til að rífa braggann Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Almenningur borgar skattahækkanir „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Borgin greiddi um 14 milljónir fyrir veislur Allrólegu veðurfari spáð í dymbilvikunni Afleit staða til að eiga við faraldur Salman Rushdie fyrirgefur ekki Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article