Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Norðmenn lækka eldsneytisskatt tímabundið

Read Full Article →

Norsk stjórnvöld ætla að lækka eldsneytisgjöld um mánaðamótin til að bregðast við hækkandi heimsmarkaðsverði. Þau greindu frá þessu á blaðamannafundi í morgun í kjölfar þess að lækkunin var samþykkt á Stórþinginu á fimmtudag. Lækkunin gildir frá 1. apríl til 1. september. Jens Stoltenberg fjármálaráðherra Noregs segir að ákveðið hafi verið að grípa til skjótra aðgerða. Skýra þurfi ýmis tæknileg atriði við útfærslu lækkunarinnar, meðal annars til að tryggja að þau séu í samræmi við EES-samninginn. Nokkur ríki hafa gripið til svipaðra ráðstafana vegna hækkandi olíuverðs af völdum átakanna í Mið-Austurlöndum, til að mynda Spánn. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur sagt að slíkt sé ekki til skoðunar hér á landi.

Share this article