Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skutu á fullhlaðið olíuskip í höfn

Read Full Article →

Eldur kviknaði í stóru olíuflutningaskipi í höfn í Dúbaí í morgun þegar Íranar gerðu árás á höfnina. Enginn særðist í árásinni og búið er að slökkva eldinn. Yfirvöld segja að olía hafi ekki lekið úr skipinu. KUNA, fréttastofan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sagði að skipið hefði verið fullhlaðið af olíu þar sem það lá í skipalægi við höfnina þegar árásin var gerð. Talið er að skipið hafi orðið fyrir árás dróna. Um það leyti sem skipið var hæft stóð yfir árás þar sem Íranar beittu drónum og eldflaugum. Eldur stígur upp af höfn í árás á Dúbaí fyrr í mánuðinum.EPA / Stringer

Share this article