Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíu­verð hækkar eftir árásir Íran á inn­viði

Read Full Article →

Verð á Brent-hráolíu hækkaði í morgun í tæpa 104 dali eftir að Íran herti árásir á orku­inn­viði og sam­göngu­mann­virki við Persaflóa. Árásirnar hafa aukið á ótta við frekari truflanir á olíu­flutningum og dýp­kað óvissu á mörkuðum. Þetta kemur meðal annars fram í beinni lýsingu Financial Times um átökin. Í Sam­einuðu arabísku fursta­dæmunum var greint frá því að dróni hefði hæft Shah-gassvæðið, eitt stærsta gassvæði heims, og að olíu­skip hefði orðið fyrir höggi undan Fujairah við Óman­flóa. Þar hafði áður kviknað í olíutanki eftir drónaárás þótt starf­semi hafi síðan tekið að komast á aftur. Árásir tengdra víga­sveita í Írak héldu einnig áfram í nótt. Bandaríska sendiráðið í Bagdad varð fyrir dróna- og eld­flaugaárásum, að sögn öryggis­full­trúa, og írönsk stjórn­völd for­dæmdu jafn­framt árásir á Al-Ras­heed-hótelið í Bagdad sem og á Majnoon-olíu­svæðið. Flug­um­ferð um Dubai varð fyrir frekari röskun eftir að dróna- og eld­flaugaárásir leiddu til þess að yfir­völd lokuðu loft­helgi fursta­dæmanna tíma­bundið. AP segir að loft­helgin hafi síðar verið opnuð á ný en tafir og af­bókanir héldu áfram og starf­semi á flug­vellinum gekk treg­lega upp eftir endur­opnun. Donald Trump sagði í gær að Kína, Japan og Suður-Kórea ættu að vera Bandaríkjunum þakk­lát fyrir árásirnar á Íran og kvaðst undrandi á því að ríkin hefðu ekki sýnt meiri vilja til að senda her­skip að Hor­mússundi. Á sama tíma hefur reynst torsótt fyrir Bandaríkin að mynda breiða sam­stöðu um að tryggja siglingar þar um.

Share this article