- What: Political leaders visit Bucha to remember war crimes
- Impact: Remembrance of Russian war crimes in Ukraine
Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir er meðal þingforseta og fulltrúa um tuttugu þjóðþinga sem komnir eru til Bucha í Úkraínu. Þar er þess minnst í dag að fjögur ár eru liðin frá því rússneskar hersveitir unnu þar voðaverk á óbreyttum borgurum í bænum. Þórunn og aðrir þingforsetar taka í dag þátt í ráðstefnu sem kennd er við Bucha. Þar á meðal annars að ræða um sérstakan dómstól sem til stendur að setja á laggirnar til að fjalla um stríðsglæpi sem framdir hafa verið í innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Hópur utanríkisráðherra Evrópuríkja er einnig í Bucha í dag, ásamt Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, þar se m óformlegur fundur ráðherranna er haldinn.