Innlent | mbl | 31.3.2026 | 10:25 Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir króna Dómur héraðsdóms féll í málinu í gær. mbl Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu þrotabús einkahlutafélags um að tvær greiðslur félagsins fyrir gjaldþrotið til stjórnarmanns þess teldust ólögmæt lánveiting sem honum bæri að endurgreiða með dráttarvöxtum. Samtals er manninum gert að greiða þrotabúinu 10 milljónir króna. Fram kemur í dómi héraðsdóms, sem féll í gær, að þrotabúið Opera Service ehf. hefði höfðað mál á hendur Björgvini Narfa Ásgeirssyni þar sem farið var fram á að Björgvin yrði gert að greiða þrotabúinu 10.050.000 krónur ásamt dráttarvöxtum. Til vara var þess krafist í fyrsta lagi að rift yrði með dómi greiðslum hins gjaldþrota félags, Opera Service ehf., til Björgvins sem inntar voru af hendi með millifærslum 14. febrúar 2024, að fjárhæð 10.050.000 krónur, og í öðru lagi var þess krafist til vara að Björgvin yrði dæmdur til að greiða þrotabúinu 10.050.000 krónur ásamt vöxtum. Björgvin krafðist sýknu og málskostnaðar að viðbættu álagi. Bú félagsins tekið til gjaldþrotaskipta í desember 2024 Fram kemur í dómnum að þrotabúið hefði verið í 100% eigu Instrumenta ehf., sem aftur var í 100% eigu Björgvins. Opera Service ehf. var stofnað í janúar 2024. Skráður tilgangur félagsins var þjónusta við fyrirtæki, kaup, sala og eignarhald á verðbréfum, kaup, sala og rekstur fasteigna og lausafjár ásamt lánastarfsemi tengdri rekstrinum og annar skyldur rekstur. Bú félagsins var tekið til gjaldþrotaskipta 11. desember 2024. Samkvæmt fundargerð skiptafundar 25. febrúar 2025 reyndust eignir búsins nema 328 krónum. Við athugun skiptastjóra á ráðstöfun eigna þrotabúsins fyrir úrskurðardag kom í ljós að félagið ráðstafaði annars vegar 10.000.000 króna og hins vegar 50.000 krónum inn á bankareikning Björgvins með tveimur millifærslum 14. febrúar 2024. Á þeim tíma var Björgvin stjórnarmaður og prókúruhafi félagsins en þar mun ekki hafa verið starfandi framkvæmdastjóri. Engin gögn að baki millifærslunum fundust í fórum félagsins Í júlí 2024 tilkynnti hann fyrirtækjaskrá um úrsögn sína úr stjórn félagsins. Af hálfu þrotabúsins hefur verið byggt á því að gögn að baki millifærslunum hafi ekki fundist í fórum félagsins. Björgvin vísaði til þess að félagið hefði ásamt tengdum félögum annast veitingarekstur. Í þeirri starfsemi hefði hlutverk Opera Service ehf. verið að sjá um bókhald og greiðslu launa. Fjármunir hafi því flætt milli félagsins og annarra tengdra félaga, sem hafi meðal annars verið UHS ehf., Ítalgest ehf., Beatus ehf. og Instrumenta ehf. Verður að bera sönnunarbyrðina Í niðurstöðu héraðsdóms segir að Björgvin verði að bera sönnunarbyrðina fyrir þeirri umþrættu staðhæfingu sinni að umræddar tvær millifærslur hans af reikningi Opera Service ehf. inn á persónulegan bankareikning hans hafi í reynd ekki verið lánveiting til hans heldur uppgjör á láni sem hann hefði áður veitt félaginu SÓK ehf., sem ekki tilheyrir sömu samstæðu félaga. Héraðsdómur segir að Björgvin hafi verið eini stjórnarmaður Opera Service ehf. og þar hafi ekki verið starfandi framkvæmdastjóri. Björgvin bar því lögum samkvæmt ábyrgð á því að bókhald félagsins væri fært með réttum hætti. Tekið er fram að ekkert slíkt bókhald hafi legið frammi í málinu, þ.e. hvort sem um er að ræða SÓK ehf., Instrumenta ehf. eða Opera Service ehf. Þá segir héraðsdómur að það teljist allt á huldu um ætluð viðskipti stefnda við SÓK ehf., sem sé í eigu maka hans. Hið sama eigi við um viðskipti SÓK ehf. við Instrumenta ehf. og viðskipti síðastnefnda félagsins við Opera Service ehf. Bent er á að engar færslur í gerðabók Opera Service ehf. liggi frammi í málinu sem fjalli um greiðslurnar tvær. Engin gögn frá félögunum Ítalgest ehf. og UHS ehf. sýni fram á að lán hafi verið veitt með veði í uppgjöri frá félögunum tveimur. Ekki skjalfest með nokkrum hætti „Raunar viðurkenndi stefndi beinlínis við aðilaskýrslu fyrir dómi að meint lánveiting hefði ekki verið skjalfest með nokkrum hætti. Nánar aðspurður fyrir dómi kannaðist stefndi ekki við neitt skuldarsamband á milli sín og Opera Service ehf. og kvaðst ekki hafa lánað því félagi persónulega. Stefndi hefur verið missaga í málinu um það í hvaða skyni nota átti fjármuni sem bárust frá Instrumenta ehf. inn í rekstur Opera Service ehf. Upphaflega byggði hann á því að lánið hefði verið nýtt til þess að greiða starfsfólki laun. Við aðalmeðferð hvarf hann frá því, en þá lá fyrir bankayfirlit sem leiddi í ljós að fjármunirnir voru í reynd ekki nýttir í því skyni heldur höfðu í heild sinni verið millifærðir á eigin reikning stefnda. Hvað varðar ætluð lánakjör vegna viðskiptanna var framburður stefnda fyrir dómi auk þess afar óljós,“ segir í dómnum. Það er því niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur að Björgvin hafi sem stjórnarmaður í Opera Service ehf. veitt sjálfum sér lán með umræddum tveimur millifærslum andstætt ákvæðum laga um einkahlutafélög. Honum ber því að endurgreiða þrotabúinu fjárhæðina með dráttarvöxtum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Stórveldi setja sig í samband við Salah Þegar villtu börnin leika sér Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Mars 2026 fer í sögubækurnar“ Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Almenningur borgar skattahækkanir „Skynja rosalega mikla reiði“ Viðsnúningur í rekstri hjá RÚV Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Eldur kviknaði í snjómoksturstæki á Hellisheiði Maðurinn fundinn heill á húfi Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Gekk í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni „Skynja rosalega mikla reiði“ Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Nýjast á mbl.is » Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Stórveldi setja sig í samband við Salah Þegar villtu börnin leika sér Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Mars 2026 fer í sögubækurnar“ Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Héraðsdómur skammar SKE Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Fá ekki leyfi til að rífa braggann „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Eldur kviknaði í snjómoksturstæki á Hellisheiði Maðurinn fundinn heill á húfi Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Gekk í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni „Skynja rosalega mikla reiði“ Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss