Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dæmdir í atvinnurekstrarbann eftir háar millifærslur á sjálfa sig, eigin félög og ættingja

Read Full Article →

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um þriggja ára atvinnurekstrarbann yfir Elvari Ingimarssyni og Björgvini Narfa Ásgeirssyni. Þeir hafa átt og rekið fjölda fyrirtækja sem urðu gjaldþrota. Skiptastjóri félags þeirra um rekstur veitingastaðarins Ítalíu fór fram á atvinnurekstrarbann yfir mönnunum. Elvar og Björgvin keyptu Ítalíu af fyrri eiganda í maí 2023. Í október næsta ár var fyrirtækið lýst gjaldþrota að kröfu lífeyrissjóðsins Gildis. Heildarkröfur í þrotabúið námu 116 milljónum króna. Þar af voru vangoldin laun 4,5 milljónir og vangreidd lífeyrissjóðsiðgjöld 10 milljónir. Engar eignir voru í búinu. Skiptastjórinn krafðist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að Elvar og Björgvin yrðu dæmdir í atvinnurekstrarbann. Það er nýlegt ákvæði í lögum sem var sett til að vernda almenning fyrir kennitöluflakki og misnotkun á rekstri fyrirtækja með takmarkaðri ábyrgð eigenda. Fram kemur í dómum Héraðsdóms Reykjavíkur og Landsréttar að eigendurnir skiluðu aldrei inn ársreikningi og engin bókhaldsgögn var að finna. Þeir sögðu það vera hjá endurskoðunarfyrirtæki en stjórnandi þess vísaði því á bug og sagðist aldrei hafa unnið fyrir fyrirtækið. Enn fremur kom í ljós að félagið hafði með fjölda færslna greitt yfir 100 milljónir króna til eigenda félagsins, annarra félaga í þeirra eigu, aðstandenda og annarra fyrirtækja. Engar trúverðugar skýringar þóttu hafa fengist á átta milljóna króna greiðslu til skartgripaverslunar í Dúbaí. Önnur átta milljóna króna greiðsla til bílasölu, sem var upphaflega skýrð sem endurgreiðsla á láni, var að sögn bílasölunnar kaupverð fyrir bíl sem er skráður á maka annars eigandans. Mennirnir andmæltu kröfunni um atvinnurekstrarbann en voru dæmdir í slíkt bann á tveimur dómstigum.

Share this article