Innlent | mbl | 3.3.2026 | 16:33 Staðfesta atvinnurekstarbann fyrrum eigenda Ítalíu Ítalía var um árabil einn vinsælasti veitingastaður landsins. Fyrri eigendur seldu reksturinn árið 2023. mbl.is/Golli Setja bókamerki Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson sæti atvinnurekstrarbanni í þrjú ár frá uppkvaðningu dómsins. Málið var höfðað að kröfu Björns Þorra Viktorssonar, skiptastjóra þrotabús Ítalgest ehf., en rekstur veitingastaðarins Ítalíu var undir hatti félagsins. Það var tekið til gjaldþrotaskipta í október 2024. Héraðsdómur féllst í janúar á kröfu um atvinnurekstrarbann og kærðu þeir Elvar og Björgvin þá niðurstöðu til Landsréttar. Frétt af mbl.is Þykir mótmæli Eflingar afar þungbær Úrræði til verndar almenningi Elvar og Björgvin áfrýjuðu dómi héraðsdóms og töldu enn fremur að krafa skiptastjóra um atvinnurekstarbann hafi komið of seint fram. Þessu hafnaði Landsréttur og að ekki hafi skipt máli hvort auglýsing um lok gjaldþrotaskipta hafi verið birt fyrir eða eftir að krafan var lögð fram. Var því hafnað málsástæðu um að krafan hefði komið of seint fram. Rétturinn áréttar að atvinnurekstrarbann eru ekki refsikennd viðurlög heldur úrræði til verndar almenningi og samfélaginu gegn misnotkun á félagaformi með takmarkaðri ábyrgð. Talinn „skuggastjórnandi“ Landsréttur taldi hafið yfir vafa, á grundvelli gagna og framburðar fyrir héraðsdómi, að Björgvin Narfi hefði verið svokallaður skuggastjórnandi Ítalgest ehf., það er að hann hafi í reynd stýrt félaginu án þess að vera skráður formlegur stjórnandi. Dómurinn vísaði til þess að hann hefði á tímabilinu fyrir gjaldþrot gegnt ýmist stöðu varamanns í stjórn, verið skráður eigandi eða raunverulegur eigandi og haft prókúru eða aðgang að reikningum félagsins. Þá hafi hann tekið virkan þátt í rekstri og ráðstöfun fjármuna þess. Engin bókhaldsgögn hjá þriðja aðila Kærendur héldu því fram að bókhaldsgögn félagsins hefðu verið í vörslu þriðja aðila, Endár ehf., sem neitað hefði að afhenda þau vegna ógreiddra reikninga. Fyrir Landsrétti lá hins vegar fyrir tölvupóstur frá forsvarsmanni Endár ehf. þar sem staðfest var að félagið hefði aldrei haft bókhaldsgögn Ítalgest ehf. undir höndum. Taldi rétturinn því enga stoð fyrir þeirri málsástæðu. Niðurstaðan staðfest í heild Með vísan til framangreinds og forsendna héraðsdóms var niðurstaðan staðfest að fullu. Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson sæta því báðir atvinnurekstrarbanni í þrjú ár. Þóknun skiptastjóra vegna málsins fyrir Landsrétti, rúmar 530 þúsund krónur, greiðist úr ríkissjóði. Sama fjárhæð greiðist skipuðum verjanda kærenda úr ríkissjóði. Þá var hvorum kærenda gert að greiða 265.050 krónur í málskostnað til ríkissjóðs. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland tapaði 46:0 Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Staðfesta atvinnurekstarbann fyrrum eigenda Ítalíu Þjóðhagsráð kom saman til fyrsta fundar „Vörn er besta sóknin“ Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höfuðborgarbúar losna ekki við snjóinn í bili Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Þak sendiráðsins hrunið að hluta Blint getur orðið á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustan hríð Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Ísland tapaði 46:0 Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Staðfesta atvinnurekstarbann fyrrum eigenda Ítalíu Þjóðhagsráð kom saman til fyrsta fundar „Vörn er besta sóknin“ Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Beint: Starmer sendir þyrlur með drónavarnargetu Kunnugt um 140 Íslendinga á áhrifasvæðum RÚV segir upp samningi við Sýn Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju