Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gert að greiða 2,2 milljónir

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.4.2026 | 20:45 Gert að greiða 2,2 milljónir í miskabætur Héraðsdómur segir að um gróft kynferðisbrot hafi verið að ræða. „Eykur á grófleikann að stefnandi var 16 ára þegar brotið var framið.“ Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Kynferðisbrot Fékk átta ára dóm fyrir sérlega gróf brot Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum níðingi Óheppileg ummæli lögreglu og ámælisverð hátttsemi Ómerkir dóm Landsréttar í nauðgunarmáli Dæmdur í átta ára fangelsi » Fleiri tengdar fréttir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til að greiða konu 2,2 milljónir króna í miskabætur vegna kynferðisbrots. Héraðssaksóknari gaf út ákæru á hendur manninum í maí 2023 þar sem hann var sakaður um nauðgun. Málið varðar atvik sem átti sér stað á heimili mannsins í júlí 2019. Fram kemur í ákæru að maðurinn hafi haft samræði og önnur kynferðismök við 16 ára stúlku sem hann tengdist fjölskylduböndum án hennar samþykkis. Maðurinn neitaði sök og hafnaði bótaskyldu. Með dómi héraðsdóms 2024 var maðurinn sýknaður af ákæru og einkaréttarkröfu brotaþola vísað frá dómi. Sakfelldur í Landsrétti og Hæstiréttur staðfesti dóminn Með dómi Landsréttar í fyrra var maðurinn hins vegar sakfelldur samkvæmt ákæru en sýknaður að hluta. Samkvæmt dómi Landsréttar var manninum gert að sæta fangelsi í tvö ár en dómurinn var skilorðsbundinn í 21 mánuð. Þá var dómur héraðsdóms ómerktur um frávísun einkaréttarkröfunnar, þar sem farið var fram á fjórar milljónir í miskabætur. Þeim hluta málsins var vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju. Með dómi Hæstaréttar Íslands á þessu ári var dómur Landsréttar staðfestur. Einkamál höfðað í mars Þann 2. mars var svo sérstakt einkamál vegna bótakröfu konunnar tekið fyrir í héraðsdómi. Maðurinn viðurkenndi bótaskyldu gagnvart konunni en mótmælti bótafjárhæðinni. Fram kemur í niðurstöðu héraðsdóms, sem féll 13. apríl, að maðurinn hafi verið sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn konunni að mestu leyti í samræmi við ákæru. Í refsiverðri háttsemi hans fólst ólögmæt meingerð gegn henni. Maðurinn var því bótaskyldur lögum samkvæmt. Hafði alvarleg neikvæð áhrif á stúlkuna „Um var að ræða gróft kynferðisbrot. Eykur á grófleikann að stefnandi var 16 ára þegar brotið var framið en stefndi var tæplega […] árum eldri og þroski hans því meiri. Einnig auka fjölskyldutengsl á grófleikann og að brotið var framið í aðstæðum þar sem stefnandi mátti gera ráð fyrir að vera örugg. Meðal málsgagna er vottorð C sálfræðings, dags. 28. nóvember 2019, þar sem greinir meðal annars frá greiningu um áfallastreituröskun og annarri vanlíðan stefnanda vegna brots stefnda. Er ljóst af vottorðinu að brot stefnda hafði alvarleg neikvæð sálræn áhrif á líðan stefnanda og olli henni mikilli röskun,“ segir í dómnum. Tengdar fréttir Kynferðisbrot Fékk átta ára dóm fyrir sérlega gróf brot Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum níðingi Óheppileg ummæli lögreglu og ámælisverð hátttsemi Ómerkir dóm Landsréttar í nauðgunarmáli Dæmdur í átta ára fangelsi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Keflavík - Valur, staðan er 63:54 Bayern sló Real Madrid úr leik í München Endurkomusigur meistaranna í fyrsta leik Arsenal í undanúrslit Meistaradeildarinnar Gert að greiða 2,2 milljónir Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Loftbrú breytt peninganna vegna Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Keflavík - Valur, staðan er 63:54 Bayern sló Real Madrid úr leik í München Endurkomusigur meistaranna í fyrsta leik Arsenal í undanúrslit Meistaradeildarinnar Gert að greiða 2,2 milljónir Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article