Innlent | mbl | 18.2.2026 | 11:23 Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að það hefði verið sannað að ökumaðurinn hefði sýnt af sér refsiverða háttsemi er hann sýndi ekki nægilega aðgæslu þar sem hann hafði stöðvað bifreiðina þegar farþegar voru að fara út úr henni. Hann ók svo af stað og lokaði aftari dyrum ökutækisins áður en konan var komin út úr henni með þeim afleiðingum að hún féll út og maðurinn ók síðan yfir fætur hennar þar sem hún lá bjargarlaus í götunni. Ljósmynd/Colourbox Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt ökumann hópbifreiðar í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsmeiðingar og umferðarlagabrot. Maðurinn ók af stað með þeim afleiðingum að kona féll úr bifreiðinni og hélt áfram akstri og ók svo yfir fætur hennar. Maðurinn var enn fremur sviptur ökurétti í þrjá mánuði og dæmdur til að greiða konunni 1,3 milljónir króna í miskabætur auk vaxta, að því er segir í dómi héraðsdóms. Hann féll 6. febrúar en var birtur í gær. Lögreglustjórinn á Austurlandi gaf út ákæru á hendur manninum 20. ágúst. Í henni er maðurinn ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt ónefnds dags árið 2024, sem ökumaður hópbifreiðar sem hann hafði stöðvað, ekki sýnt nægilega aðgæslu þegar farþegar voru að fara út úr bifreiðinni. Hann ók af stað og lokaði aftari útgangshurð ökutækisins áður en konan var komin út úr henni með þeim afleiðingum að konan féll út úr bifreiðinni og á götuna. Síðan, þar sem konan lá bjargarlaus í götunni, hélt ökumaðurinn áfram akstri sínum án nægilegrar varúðar þannig að afturdekk bifreiðarinnar fór yfir báða fætur hennar. Hlaut mikla áverka Konan slasaðist talsvert en hún hlaut ökklabrot á hægri fæti, kramningsáverka á vinstri sköflung og töluverðan mjúkvefjaskaða á vinstri fæti með þremur gapandi skurðum. Maðurinn neitaði refsiverðri sök á dómþingi 1. október þar sem hann teldi ekki um líkamsmeiðingar af gáleysi að ræða. Þá var bótaskyldu hafnað af hans hálfu. Við aðalmeðferð málsins 9. janúar var af hans hálfu aðallega krafist sýknu af kröfum ákæruvalds í refsiþætti málsins en til vara í þeim þætti að ákærði sætti vægustu viðurlögum sem lög leyfa. Þá var þess aðallega krafist í einkaréttarþætti málsins að bótakröfu og kröfu um málskostnað yrði vísað frá dómi í tilviki sýknu í refsiþætti málsins, til vara sýknu af bótakröfu og að kröfu um málskostnað yrði hafnað. Sýndi konunni einlæga samkennd Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði sýnt af sér refsiverða háttsemi. Dómstóllinn virðir manninum til málsbóta að hafa um margt skýrt greiðlega frá og að hafa sýnt konunni einlæga samkennd. Þá hefði hann við meðferð málsins á rannsóknarstigi og fyrir dómi ekki dregið undan við að upplýsa málið þó svo að hann hefði neitað refsiverðri sök og að málatilbúnaður hans hefði lotið að því að saknæmisskilyrði væru ekki fyrir hendi. Maðurinn var enn fremur dæmdur til að greiða rúma milljón í sakarkostnað. Bíða eftir frekari gögnum vegna andlátsins Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Erfiður dagur hjá Íslendingunum Shia LaBeouf skilinn í leyni og handtekinn Vill Kristrúnu fyrir dóm Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Vínverslun Hagkaups vel tekið Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ „Það verður bara að koma í ljós“ Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Hringvegurinn ófær frá Vík að Kirkjubæjarklaustri Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur Festist í lyftu á hóteli Gjaldskyldan eldfimt umræðuefni Innilokuð raforka í Blönduvirkjun Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Bíða eftir frekari gögnum vegna andlátsins Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Erfiður dagur hjá Íslendingunum Shia LaBeouf skilinn í leyni og handtekinn Vill Kristrúnu fyrir dóm Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Clinton sakar Trump um yfirhylmingu Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Veita undanþágur vegna líkbrennslu Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Hringvegurinn ófær frá Vík að Kirkjubæjarklaustri Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur Festist í lyftu á hóteli Gjaldskyldan eldfimt umræðuefni Innilokuð raforka í Blönduvirkjun Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi