Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Verðhækkanir í kringum sólmyrkva gætu fælt ferðamenn

Read Full Article →

Mögulegt er að einhverjir ferðamenn gætu fælst frá því að koma til Íslands sökum verðhækkana á þjónustu á ákveðnum tíma. Almyrkvi verður á sólu þann 12. ágúst og er mikið af hótelgistingu á landinu þegar uppbókuð í kringum þessa daga. Þá freistast margir til þess að leigja út hús sín og íbúðir á uppsprengdu verði. „Það verður örugglega búhnykkur fyrir einhverja en það er spurning hver heildaráhrifin verða af þessum viðburði, sagði Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, í Silfrinu í gær. „Þetta hefur þau áhrif að þjónusta selst á margföldu verði, þessa tvo, þrjá, fjóra daga í kringum sólmyrkvann,“ segir hún. Dæmi séu um að fólk sé tilbúið að borga háar upphæðir til þess að geta verið hér á landi þegar hann á sér stað. Fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar telur að há verð á þjónustu í kringum almyrkva á sólu geti mögulega fælt frá einhverja ferðamenn. Þúsundir flykkjast til landsins í kringum myrkvann en áhrifa geti gætt langt út fyrir þá daga. Bjarnheiður segir að ferðaþjónustan byggi á því að fólk komi í lengri ferðir. Það geti þó verið að einhverjir ferðalangar sem hafi ætlað að koma í hálfan mánuð, til dæmis til að ferðast um landið, geti hætt við út af verðhækkunum. „Það er spurning hvar skurðpunkturinn liggur, hvort við erum þá að hagnast á þessu eða ekki þegar upp er staðið,“ segir hún.

Share this article