Innlent | mbl | 4.5.2026 | 13:20 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Þann 12. ágúst mun tunglið hylja sólina að fullu á vestanverðu landinu og verður þetta fyrsti almyrkvinn sem sést frá Íslandi í 74 ár. mbl.is/Rax/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Í dag eru nákvæmlega 100 dagar í sögulegan almyrkva á sólu á Íslandi sem verður þann 12. ágúst næstkomandi og af því tilefni hefur Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, uppfært gagnvirkt sólmyrkvakort sem veitir nánari upplýsingagjöf til landans og ferðamanna um almyrkvann. Uppfærsluna má finna á vefsíðunum solmyrkvi2026.is og eclipse2026.is og segir Sævar í samtali við mbl.is að tilgangur þeirra sé að vera með enn betri og áreiðanlegri upplýsingagjöf fyrir landsmenn og þá ferðamenn sem hingað munu koma til að fylgjast með almyrkvanum. Þá segir Sævar að von sé á frekari upplýsingum þar sem hann hyggst bæta við nánast vikulega upplýsingum um það sem koma skal, af hverju sólmyrkvar séu merkilegir, hvernig dýr bregðist við honum og hvað þurfi að hafa í huga. Frétt af mbl.is Það magnaðasta sem hægt er að sjá Hægt að sjá lengd myrkvans frá sínu heimili Á meðal þess sem hægt er nú að sjá á síðunum eru sekúndu- og mínútulínur sem og prósentutölur deildarmyrkvans austan og vestan almyrkvaslóðarinnar. Þá getur fólk slegið inn heimilisfang sitt og smellt á kort og mun þá gluggi birtast sem sýnir lengd og tímasetningar myrkvans frá þeirra heimili eða þaðan sem fólk ætlar sér að sjá hann. Á kortinu getur fólk séð ör sem bendir í þá átt sem myrkvinn verður á himninum. Einnig má þar finna upplýsingar um hvenær eigi að nota sólmyrkvagleraugun og hvenær eigi að taka þau af og horfa á myrkvann með berum augum. Aukinheldur má finna skuggavarp sem sýnir nákvæmlega hvar skuggar af landslagi og byggingum falla klukkan 17:45 12. ágúst og gætu byrgt sýn. Frétt af mbl.is „Stórviðburður“ á Íslandi Vinnur nú við að koma mikilvægum upplýsingum á framfæri „Svo er ég núna að vinna með markaðsstofnunum á öllum þessum landshlutum í að koma upplýsingum á framfæri sem eru hagnýtar fyrir ferðafólk, eins og t.d. hvar safnstaðir verða og bílastæði, hvar vegir verða lokaðir og hvenær umferðarstýring byrjar. Allt þetta sem verið er að búa okkur undir og heimafólk þarf auðvitað að hafa bæði þekkingu og vit á. Við vitum að það gerist í öllum svona sólmyrkvum að það verður gífurleg umferð á þá staði sem best sést og vegirnir okkar sums staðar ráða bara hreinlega ekkert við það, þannig að það verða svona ákveðnar umferðarstýringar sem á eftir að kynna almennilega fyrir almenningi þegar nær dregur. Umferðarhraði verður örugglega lækkaður hér og þar. Það eiga eftir að koma tilkynningar um það,“ segir Sævar og nefnir að slíkar upplýsingar muni rata inn á vefsíðurnar ásamt frekari fróðleik. Frétt af mbl.is Leigja út heimili á ríflega milljón Stjórnvöld hafi dregið lappirnar Hann bendir jafnframt á að tæp þrjú ár séu síðan hann hóf vinnu við síðurnar en þá voru yfir níu hundruð dagar til stefnu. „Flestum fannst það óskaplega langt í burtu en tíminn líður ótrúlega hratt og sem betur fer er undirbúningur hafinn en við mættum samt alveg standa okkur betur í því, best að segja,“ segir Sævar. „Stjórnvöld hafa svolítið dregið lappirnar í þessum efnum og ef ég tala frá hjartanu þá er það ekki þeim að þakka að hér fer ekki allt á fjörurnar þegar stóri dagurinn rennur upp. Það eru aðrir sem hafa séð um það.“ Frétt af mbl.is Lögregla setur einstefnu á valda vegi Þakklátur þeim sem hafa lagt hönd á plóg Um er að ræða einkaframtak Sævars en bendir hann þó á að almenningur og ýmis fyrirtæki hafi lagt hönd á plóg með því að kaupa gleraugu sem verða notuð þegar myrkvinn gengur yfir sem og annan varning og segist hann óskaplega þakklátur þeim sem hafi hjálpað til. „Ég geri ekkert annað og hef ekkert annað gert þetta ár, og reyndar allt síðasta ár, þannig að þetta hefur bara skipt öllum sköpum. Maður er að vinna í þessu frá morgni til miðnættis.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Carrick fær starfið hjá United 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Ók á 170 km hraða og varð sjö að bana Vilja aðgerðir á Kristnesspítala Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Frelsið minnkar og ríkið stækkar með ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Prammi á stærð við handboltavöll Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skipakomum fjölgar en skaðinn er skeður Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Carrick fær starfið hjá United 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Ók á 170 km hraða og varð sjö að bana Vilja aðgerðir á Kristnesspítala Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Frelsið minnkar og ríkið stækkar með ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Grín, hótanir og kærur Þrír látnir um borð í skipi sem fer til Íslands Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skipakomum fjölgar en skaðinn er skeður Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“