Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvetja þá sem geta til að horfa á almyrkva á sólu heima hjá sér

Read Full Article →

Lögreglan á Vestfjörðum ætlar að grípa til lokana við Látrabjarg ef fjöldi ferðamanna fer yfir ákveðin mörk við sólmyrkvann í ágúst. Á Vesturlandi er líka verið að undirbúa umferðarstýringu og í Snæfellsjökulsþjóðgarði er búið að kortleggja hvar gera má ráð fyrir að álagið verði sem mest. Undirbúningur fyrir sólmyrkvann hófst fyrir þremur árum hjá Markaðsstofu Vestfjarða, þegar fundað var með sveitarfélögum á Vestfjörðum. Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofunnar, bendir á að ferðamenn og ferðaþjónustur hafi byrjað að skipuleggja ferðir sínar fyrir nokkrum árum. „Hér er gisting löngu uppbókuð, örugglega fyrir tveimur árum síðan,“ segir Sölvi. Hvers vegna er þessi almyrkvi svona mikið mál? Sólmyrkvi verður þegar tunglið skyggir á sólina svo rökkur verður á jörðinni. Algengast er að tunglið skyggi aðeins á hluta sólarinnar. Þá verður deildarmyrkvi. Slíkar aðstæður verður á nokkurra ára fresti en skugginn er misstór. Ef tunglið er nógu nálægt jörðinni þegar það er á milli sólar og jarðar getur það farið alveg fyrir sólina svo engin geisli nái til jarðar. Þá verður almyrkvi á sólu. Almyrkvi var síðast sjáanlegur frá Íslandi árið 1954. Hann sést næst árið 2245. Þar sem almyrkvi er sjaldgæf sjón eru margir sem vilja berja hann augum. Hann sést best á Íslandi og Grænlandi en einnig á litlu svæði í Portúgal, norðurhluta Spánar og endar við sólsetur á Mallorcal. Sævar Helgi Bragason heldur úti upplýsingasíðu um sólmyrkvann á www.solmyrkvi26.is . Meðal áhugafólks um sólmyrkva er áhuginn slíkur að um átta ár eru síðan fréttir bárust af því að fjöldi fólks hefði þegar bókað sér gistingu á Hótel Breiðuvík, þeim gististað sem næstur er Látrabjargi. Gæti orðið eftirsótt að vera á Látrabjargi Yst á Bjargtöngum, vestasta parti landsins, varir sólmyrkvinn lengst, í tvær mínútur og 18 sekúndur. Fulltrúar frá Náttúruverndarstofnun, lögreglu, Vestfjarðastofu og landeigendum vinna að skipulagi fyrir Látrabjarg. Hann er þó sýnilegur frá stærstum hluta Vestfjarða og Sölvi segir ferðamenn hvatta til að halda sig við þéttbýli þar sem innviðir eru betri: „Fjöldinn sem getur heimsótt Látrabjarg er háður því hvaða innviðir eru til staðar. Eins og staðan er núna er ekki hægt að taka á móti mörgum. “ Örlygshafnarvegur, sem liggur frá botni Patreksfjarðar og út að Bjargtöngum, er tæplega fimmtíu kílómetra langur malarvegur, mjór og af mörgum talinn háskalegur. Lögreglan á Vestfjörðum hefur til skoðunar að setja einstefnu á út að Bjargi og svo til baka þegar myrkvinn er búinn. Það væri meðal annars gert til að tryggja aðgengi viðbragðsaðila. Til marks um áhugann fær hótelið í Breiðavík 10-15 fyrirspurnir á dag um 12. ágúst. Þar er til skoðunar að leggja tún undir bíla- og tjaldstæði. Skipulagshópurinn metur þolmörk svæðisins, ekki síst með tilliti til bílastæða. Þá er til skoðunar hvernig hægt sé að styrkja innviði, auka gæslu, setja upp öryggishlið, salerni og fleira. Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum bendir þó á að ef mikill fjöldi vill sækja staðinn verði lögreglan að takmarka aðgang: „Við ætlum að vera viðbúin að fylgja því eftir að svæðunum verði lokað þegar einhverjum mörkum er náð varðandi mannfjölda og bíla.“ Auka viðbragð til að tryggja öryggi Lögreglan gerir ráð fyrir auknum mannskap. Alla jafna er einn bíll með tveimur lögreglumönnum á vakt á Patreksfirði, Ísafirði og Hólmavík, sex manns alls. Þegar sólmyrkvinn á sér stað sjá þau fyrir sér að átta bílar verði á vakt með 16 manns. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða fjölgar líka fólki á vakt og skoðar að hafa sjúkrabíl til taks á Látrabjargi til að stytta viðbragðstíma ef eitthvað kemur upp á. Hlynur segir unnið að því að taka saman kostnað við slíkt viðbragð en engin opinber fjárveiting liggi fyrir. „Það verður bara að koma í ljós. Við trúum því að fjárveitingarvaldið, sem sagt ríkisstjórnin, mæti þörfum viðbragðsaðila.“ Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu 12. ágúst nær til fjölda stofnana. Fjögur lögregluembætti, á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum, undirbúa viðbragð og umferðarstýringu. Einnig sjáanlegt frá höfuðborgarsvæðinu Sölvi bendir fólki á að koma snemma og dvelja lengur til að dreifa álagi. Í þéttbýliskjörnum sé verið að undirbúa svæði þar sem fólk geti safnast fyrir, með salernum og öðrum innviðum. Fyrir flesta landsmenn er þó engin þörf á að ferðast yfirhöfuð. „70% þjóðarinnar býr á þessari almyrkvaslóð og við getum í raun og veru flestöll hérna á landinu orðið vitni að þessu magnaða sjónarspili heima hjá okkur.“ Aðrir staðir á landinu eru öllu aðgengilegri til að verða vitni að almyrkvanum. Ætla má að Snæfellsnes verði vinsæll áfangastaður enda varir sólmyrkvinn þar aðeins nokkrum sekúndum styttra en við Látrabjarg. Í Snæfellsjökulsþjóðgarði hafa landverðir kortlagt hvaða svæði geta tekið á móti mannfjölda og hver ekki. Vernda viðkvæm svæði og efla innviði þar sem þolið er meira Eva Dögg Einarsdóttir, yfirlandvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs, segir það þeirra markmið að vernda viðkvæma náttúru á svæðinu en jafnframt stuðla að jákvæðri upplifun gesta. „Við viljum taka þessi viðkvæmu svæði og loka þeim fyrir akandi umferð en jafnframt horfa í sterku svæðin og styrkja þau. Bæta við bílastæðum, bæta við aðstöðu eins og salernum og mannskap.“ Enn er óljóst hversu margir verða á staðnum en það veltur líka talsvert á veðrinu. Á góðum sumardögum getur fjöldi gesta í þjóðgarðinn náð 4000 manns, ekki síst ef það eru skemmtiferðaskip í höfn í Grundarfirði. „Við vitum að það eru margir að spyrjast fyrir um aðstöðu þannig að ég yrði ekki hissa þó að þessi tala myndi hlaupa á einhverjum tugum þúsunda,“ segir Eva. Hugað sérstaklega að instagram-vænum stöðum Ysti tangi Snæfellsness, Öndverðarnes, gæti verið eftirsóttur staður en vegurinn þangað er lélegur. Þar á að loka veginum fyrir ökutækjum en til skoðunar er að bjóða upp á rútuferðir út á nesið. „Við erum alveg komin með nokkra staði þar sem við sjáum fyrir okkur að ljósmyndarar og þeir sem huga að Instagram-myndatöku gætu viljað vera, það er til dæmis fyrir aftan kirkjuna á Búðum, þar sjáum við fyrir okkur að gæti orðið dálítið mikið af fólki,“ bætir Eva við. Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu 12. ágúst nær til fjölda stofnana. Fjögur lögregluembætti, á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum, undirbúa viðbragð og umferðarstýringu. Annar slíkur staður er Lóndrangar, þar sem fólki gefst færi á að ná mynd af myrkvanum með jökulinn í baksýn. „Við erum komin með töluvert gott plan eins og er. Okkur vantar samt ákveðnar forsendur til að geta gefið þetta plan út, eins og hvort við séum með fjármagn og hvert skipulag lögreglu og Vegagerðar verður.“ Víðtækt viðbragð stofnana og sveitarfélaga Undirbúningur fyrir almyrkvann nær til fjölda stofnana. Fjögur lögregluembætti, á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum, undirbúa viðbragð og umferðarstýringu. Það er mikið tilstand í nær öllum sveitarfélögum á Vestfjörðum og á Vesturlandi, auk þess sem hátíðin Iceland Eclipse verður haldin á Hellissandi. Vegagerðin þarf að sinna vegalokunum og viðhaldi vega eftir aukið álag. Heilbrigðisstofnanir, slökkvilið og björgunarsveitir þurfa að tryggja mönnun og aðgengi. Stjórnvöld hafa skipað stýrihóp og samráðshópur starfar á vegum almannavarna. Kostnaður verður töluverður en ekkert liggur fyrir um fjárveitingar af hálfu hins opinbera. Óvíst um fjöldann en umferð gæti orðið þung Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir að mörgu að huga, ekki síst umferðinni sem muni liggja vestur á firði og út á Snæfellsnes. Samráðshópur almannavarna vinnur að því að meta hversu mikill fjöldi fólks verður á ferðinni. „En á Íslandi verða líklega 80 þúsund ferðamenn og við erum að tala um fullt af rútum og ferðabílum og fólk í tjöldum og þessum húsbílum og svo skip sem munu liggja fyrir utan,“ segir Ásmundur. Þá geti orðið allt að fimm þúsund manns sem sæki hátíðina Iceland Eclipse á Hellissandi. Í aðdraganda sólmyrkvans hafa ófáir rifjað upp Lýðveldishátíðina 1994, þegar fjöldi fólks stefndi á Þingvelli og sat fast í umferðarteppu svo klukkustundum skipti. Ásmundur segir skipulag lykilinn að því að forðast að slíkt endurtaki sig. Fjarlægja ökutæki sem verða fyrir og hringakstur á Snæfellsnesi Lögreglan muni meðal annars hafa kranabíla til taks. „Við munum bara fjarlægja ökutæki sem eru fyrir. Svo munum við mögulega skoða það að loka einhverju eða setja á hringakstur.“ Á Útnesvegi um Snæfellsnes gæti því verið að lögregla loki annarri akreininni. „Almenn umferð keyrir bara hægra megin á veginum og fer sína leið en viðbragðsaðilar hafa þá hina akreinina fyrir sig.“ Fjögur lögregluembætti vinna saman að viðbragðinu, auk ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytisins. Að skipulaginu koma líka björgunarsveitirnar, sjúkralið og slökkvilið. Þá bendir Ásmundur á möguleikann á því að fá lögreglumenn frá öðrum embættum til aðstoðar enda eykst þörfin á mannskap eftir fjölda á svæðinu. „Til að setja þetta í samhengi má nefna Írska daga, þá er fimm þúsund manna ball á Akranesi. Það kallar á að fara kannski úr sex löggum í þrjátíu.“ Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu 12. ágúst nær til fjölda stofnana. Fjögur lögregluembætti, á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum, undirbúa viðbragð og umferðarstýringu.

Share this article