Innlent | mbl | 4.5.2026 | 14:19 Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Samkvæmt greiningardeild Landsbankans má færa rök fyrir því að almyrkvinn í ágúst komi á versta tíma. Ljósmynd/AFPmbl.is/Karítas Setja bókamerki Ýmis rök má færa fyrir því að almyrkvi á sólu sem verður hér á landi þann 12. ágúst komi á versta tíma út frá efnahagslegu sjónarmiði. Þetta segir í tilkynningu frá greiningardeild Landsbankans. Kemur þar fram að gríðarleg eftirspurn sé eftir flugi til landsins, gistingu, veitingaþjónustu og bílaleigubílum á þeim tíma og mikið sé uppbókað nú þegar. Aukin velta og verðþrýstingur á ýmsa þjónustu verði líklega töluverð á þeim svæðum sem sólmyrkvinn sést. Frétt af mbl.is 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Efnahagsleg áhrif sést í Bandaríkjunum „Sólmyrkvar eru áhugaverðir og margir sem sækjast eftir því að berja þá augum. Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sem mun sjást vel á vesturhluta landsins, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Það má því bæði gera ráð fyrir straumi erlendra ferðamanna til landsins en einnig að Íslendingar geri sér ferð vestur til að fá betra útsýni. Færri munu komast að en vilja og því töluverður verðþrýstingur á þá þjónustu sem ferðalangar kaupa. Verð á flugfargjöldum til landsins, gistingu og bílaleigu er töluvert hærra dagana í kringum sólmyrkvann, en mikið er uppbókað nú þegar. Auk þess má búast við aukinni ásókn í veitingaþjónustu og ásókn í tjaldstæði á þeim svæðum þar sem sólmyrkvinn sést,“ segir í tilkynningunni. Er þar jafnframt nefnt að tveir almyrkvar á sólu hafi sést í Bandaríkjunum á síðustu árum (2017 og 2024) og efnahagsleg áhrif þeirra hafi verið mjög greinileg. Frétt af mbl.is „Stórviðburður“ á Íslandi Taylor Swift-áhrifin „Það er ekki óþekkt að stórir viðburðir hafi áhrif á verðmælingar. Taylor Swift-áhrifin eru vel þekkt, en á þeim stöðum þar sem hún heldur tónleika hefur það alla jafna í för með sér töluverða aukna staðbundna veltu í ferðaþjónustu. Hótel fyllast og veitingastaðir finna fyrir aukinni eftirspurn og því kemur ekki á óvart að verð á þeirri þjónustu hækki, jafnvel svo mikið að það hafi áhrif á verðbólgumælingar. Taylor Swift hélt þrenna tónleika í Stokkhólmi í maí 2024 og um 150 þúsund aðdáendur flykktust til Stokkhólms og verð á hótelgistingu rauk upp sem átti stóran þátt í því að verðbólga þann mánuð mældist töluvert yfir væntingum markaðsaðila. Það eru töluverðar líkur á að sólmyrkvinn muni hafa áhrif á verðbólgumælingar í ágúst. Áhrifin verða örugglega nokkuð greinileg þar sem sólmyrkvinn á sér stað í miðri verðsöfnunarviku Hagstofunnar. Gera má ráð fyrir að verð á flugfargjöldum, gistingu, veitingaþjónustu, bílaleigu og annarri þess háttar þjónustu verði hærra en ella vegna þess, en ferðaþjónusta er um 5,2% af vísitölu neysluverðs. Slíkt verðbólguskot er þó ekki vegna undirliggjandi efnahagsþátta heldur einfaldlega verðhækkun vegna stórviðburðar og verð lækkar að öllum líkindum aftur strax á eftir,“ segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Það magnaðasta sem hægt er að sjá Ágúst versti mánuðurinn Því megi færa rök fyrir því að sólmyrkvinn sjáist hér á landi á versta tíma út frá efnahagslegu sjónarmiði. Í fyrsta lagi sé ágúst alla jafna stærsti ferðaþjónustumánuður ársins og yrði efnahagslegur ábati vegna fjölgunar ferðamanna því minni ef myrkvinn væri t.d. einhvern tímann yfir vetrarmánuðina, þegar minna væri að gera í ferðaþjónustunni. „Þá er forsenduákvæði í kjarasamningum sem virkjast ef verðbólga mælist yfir 4,7% í ágúst. Eins og staðan er gæti brugðið til beggja vona með ágústmælingu vísitölu neysluverðs. Þó að áhrif sólmyrkvans á verðbólgumælingar yrðu ekki endilega mjög mikil, gæti það samt verið nóg til að forsenduákvæðið virkist. Ágúst er því að mörgu leyti versti mánuðurinn fyrir sólmyrkva hér á Íslandi.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma X26 - Oddvitar í Mosó mætast Bandarísk herskip komin í Persaflóa Myndskeið: Betur fór en á horfðist á Hellu Sjálftavirkni aukist og land rísi Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húsnæðislán á 47 sekúndum Almenningi stafar lítil hætta af veirunni Hætta á sinueldum og éljum í vikunni Bandarísk herskip komin í Persaflóa Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Skipakomum fjölgar en skaðinn er skeður Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma X26 - Oddvitar í Mosó mætast Bandarísk herskip komin í Persaflóa Myndskeið: Betur fór en á horfðist á Hellu Sjálftavirkni aukist og land rísi Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma X26 - Oddvitar í Mosó mætast Hætta á sinueldum og éljum í vikunni Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Skipakomum fjölgar en skaðinn er skeður Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“