Hagfræðideild Landsbankans telur töluverðar líkur á að sólmyrkvinn muni hafa áhrif á verðbólgumælingar í ágúst. Þó áhrif sólmyrkvans á verðbólgumælingar yrðu ekki endilega mjög mikil, gætu þau samt verið nóg til að forsenduákvæði í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði virkist. „Ágúst er því að mörgu leyti versti mánuðurinn fyrir sólmyrkva hér á Íslandi,“ segir í nýrri hagsjá Landsbankans. „Það má færa ýmis rök fyrir því að sólmyrkvinn sjáist hér á versta tíma, út frá efnahagslegu sjónarmiði. Í fyrsta lagi er ágúst alla jafna stærsti ferðaþjónustumánuður ársins. Efnahagslegur ábati vegna fjölgunar ferðamanna verður því minni en ef sólmyrkvinn væri til dæmis einhvern tímann yfir vetrarmánuðina, þegar minna er að gera í ferðaþjónustunni.“ Verðbólga mældist 5,2% í apríl, samanborið við 5,4% í mars. Forsenduákvæði í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði frá árinu 2024 geta virkjast ef ársverðbólga mælist yfir 4,7% í næstkomandi ágústmælingu Hagstofunnar eða að verðbólga frá mars-ágúst verður yfir 4,4% miðað við árshraða. Sjá einnig Reikna með að forsenduákvæðið muni virkjast Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sem mun sjást vel á vesturhluta landsins, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Búist er við að fjöldi ferðamanna muni sækja landið til að sjá sólmyrkvann. Hagfræðideild Landsbankans bendir á að verð á flugfargjöldum til landsins, gistingu og bílaleigu sé töluvert hærra dagana í kringum sólmyrkvann, en mikið sé uppbókað nú þegar. Auk þess megi búast við aukinni ásókn í veitingaþjónustu og ásókn í tjaldstæði á þeim svæðum þar sem sólmyrkvinn sést. Í hagsjánni segir að áhrifin á verðbólutölur verði örugglega nokkuð greinileg þar sem sólmyrkvinn á sér stað í miðri verðsöfnunarviku Hagstofunnar. Í þessu samhengi er bent á að ferðaþjónusta sé um 5,2% af vísitölu neysluverðs. „Slíkt verðbólguskot er þó ekki vegna undirliggjandi efnahagsþátta heldur einfaldlega verðhækkun vegna stórviðburðar og verð lækkar að öllum líkindum aftur strax á eftir.“