Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið

  • What: Iceland's space agency involved in NASA's Artemis mission
  • Impact: Iceland contributes to international space exploration efforts
Read Full Article →

Erlent | mbl | 31.3.2026 | 23:22 Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Daniel Leeb með Daniel Neuenschwander, yfirmanni Geimferðarstofnunar Evrópu. Ljósmynd/Matthew Devlen Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Artemis-geimáætlunin Senda mannað geimfar í átt að tunglinu 378 dagar á „Mars“ – „Eruð þið tilbúin að koma út?“ Geimfarar lendi ekki á tunglinu fyrr en 2026 DNA úr skapara Star Trek á leið til Tunglsins Samkomulag við NASA » Fleiri tengdar fréttir Áætlun NASA um að snúa aftur til tunglsins felur í sér tækifæri fyrir þjóðir heimsins að vinna saman að því að skilja alheiminn betur. Ísland getur gegnt lykilhlutverki í þeirri vegferð. Þetta er mat Daniel Leeb, framkvæmdastjóra Geimvísindastofnunar Íslands, sem nú er staddur á Canavarel-höfða í Flórida-ríki í Bandaríkjunum. Þaðan mun Artemis-2 geimfarið, fyrsta mannaða geimfarið sem sent er til tunglsins frá árinu 1972, vera sent af stað á morgun. Fjórir geimfarar munu vera um borð í geimfarinu sem mun fljúga hring í kringum tunglið áður en það snýr aftur til jarðar tíu dögum síðar. Frétt af mbl.is Senda mannað geimfar í átt að tunglinu Varanlega viðvera á tunglinu Daniel segir ýmsar ástæður fyrir því að bandaríska geimferðastofnunin NASA, sem og geimferðastofnanir annarra þjóða, hafi nú hug á því að snúa aftur til tunglsins. „Aðalástæða þess að við snúum aftur á tunglið er sú að nú hefur geimferðahagkerfið stækkað gríðarlega og breyst. Einkageirinn er að vinna náið með NASA og jafnvel leiða ákveðna vinnu. Þetta hefur gert það að verkum að hægt er að snúa aftur á tunglið, ekki aðeins um stundarsakir heldur til frambúðar. Í stað þess að fara á tunglið í nokkra daga ætlum við nú að fara á tunglið og halda kyrru fyrir þar og setja þar upp bækistöðvar. Þetta mun leyfa okkur að komast lengra í geimnum, til að mynda til Mars,“ segir Daniel i samtali við mbl.is. Héðan verður geimfarinu skotið á loft á morgun. Ljósmynd/Matthew Devlen Segir Daniel rannsóknir í geimnum hafa skilað ótrúlegum árangri í gegnum tíðina. „Það þarf að taka það inn í myndinni hve mikilvægar rannsóknir í geimnum eru okkur. Fullt af hversdagslegum hlutum sem við teljum sjálfsagða í dag eru til vegna rannsókna í geimnum, hlutir eins og GPS-tæki, gangráðar, snjallsímar og nútíma gervigreind væru ekki til ef ekki væru fyrir rannsóknir í geimnum. Við höfum notið góðs af geimrannsóknum. Á Íslandi getum við til dæmis fylgst með kvikusöfnun á Reykjanesi með hjálp gervihnatta.“ Frétt af mbl.is Bandaríkin afhjúpa áætlanir um tunglbækistöð Ísland lagt sitt að mörkum Daniel telur að rannsóknir á tunglinu geti hjálpað Íslandi á ýmsan hátt. „Til að mynda í landbúnaði, þetta getur gert kleift að rækta ýmislegt sem ekki er hægt að rækta eða erfitt er að rækta sem stendur. Einnig ætti þetta að geta sýnt okkur hvernig við getum þrívíddarprentað jarðvegsinnviði enda er jarðvegurinn á tunglinu mjög svipaður því sem finnst á sumum stöðum á Íslandi.“ Daniel Leeb ásamt Lisu Campbell, yfirmanni kanadísku geimferðastofunarinnar, fyrr í dag. Ljósmynd/Matthew Devlen Eins og flestir kannast við þá fóru æfingar Apollo-tunglfara á sjöunda áratugnum fram hér á landi. Tveir hópar geimfara komu hingað, annars vegar árið 1965 og hins vegar árið 1967, og dvöldu norður í Þingeyjarsýslum. „Fæstir á Íslandi vita að geimfarar Artemis-áætlunarinnar hafa einnig komið til Íslands til æfinga. Einnig voru gerðar tilraunir á geimbílum, sem nú eru á Mars, hér á landi. Það vita allir hvað Ísland þjónar mikilvægum tilgangi,“ segir Daniel sem telur mikilvægt að menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðuneytið leggi áhersla á málefni geimsins. Frétt af mbl.is NASA lokar Kínverja úti Mikilvægt að skýra regluverk Geimkapphlaup Bandaríkjanna og Sóvíetríkjanna á tímum Kaldastríðsins lét ríkin tvö leggja gríðarlega vinnu í það að ná yfirráðum í geimnum. Margir telja nú nýtt geimkapphlaup hafið enda ætla Kínverjar sér að ná að stíga fæti á tunglið eigi síðar en 2030 og Bandaríkjamenn hafa því lagt aukið kapp á Artemis-áætlunina. „Það er engin spurning að það er nýtt geimkapphlaup hafið. Kínverjar eru að pota í Bandaríkin, sem gerir það að verkum að Bandaríkin þurfa að bregðast við. Þetta er samt ekki bara kapphlaup á milli Bandaríkjanna og Kína. Evrópska geimferðastofnunin er líka að taka við sér og leggja til nýja og framúrstefnulega tækni. Þetta er kapphlaup um hver getur náð yfirráðum yfir gögnum í geimnum og náð þeim til jarðar og reynt að skilja þau. Það er mikilvægt að hafa í huga að einkafyrirtækin eru ekki undanskilin þessu kapphlaupi,“ segir Daniel sem telur mikilvægt að skýrt regluverk sé í gildi um geimferðir og að takmörk séu sett á fjölda gervihnatta í geimnum. Daniel Leeb ásamt Lakieshu Hawkins og Lori Glaze, yfirmönnum hjá NASA á sviði könnunarleiðangra. Ljósmynd/Matthew Devlen Allir spenntir fyrir Íslandi Yfir 60 ríki, þar á meðal Ísland, hafa nú skrifað undir Artemis-sáttmálann sem felur í sér skuldbindingar um samvinnu í könnun geimsins. Ísland á því nú í nánu samstarfi við aðrar aðildarþjóðir sáttmálans. „Ég ræddi í dag við Lisu Campbell, yfirmann Geimferðarstofnunar Kanada. Við ræddum um það hvernig Kanada og Ísland geta unnið saman. Einnig ræddi ég við einn æðsta yfirmann Geimferðarstofnunar Evrópu. Það eru allir spenntir fyrir Íslandi og hvað hægt er að gera í samstarfi með Íslandi. Ég trúi að Ísland verði í framtíðinni sterk rödd þegar kemur að rannsóknum og könnun geimsins.“ Tengdar fréttir Artemis-geimáætlunin Senda mannað geimfar í átt að tunglinu 378 dagar á „Mars“ – „Eruð þið tilbúin að koma út?“ Geimfarar lendi ekki á tunglinu fyrr en 2026 DNA úr skapara Star Trek á leið til Tunglsins Samkomulag við NASA » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung Stöðvar framkvæmdir Trumps á Hvíta húsinu „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Sif Atladóttir lætur í sér heyra Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Vonast til að létta verulega á Landspítalanum Rukka fyrir vanskráningu á morgun Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Mest lesið Í gær Í vikunni Trump: Sækið ykkar eigin olíu Hamas fögnuðu ákvörðun Íslands og Hollands Reiðubúinn að binda enda á átök þótt Hormússund verði áfram lokað Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Biðlar til Trump: „Þú getur það“ Lýðveldissinnar reyndu að sprengja lögreglustöð Réðust á olíuflutningaskip frá Kúveit ESB hvetur fólk til að vinna heima og keyra minna Senda mannað geimfar í átt að tunglinu Hegseth: Næstu dagar verða afgerandi Úkraínumenn biðja Finna afsökunar Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Stöðvuðu eldflaug á leið til Tyrklands Flóttamaður skotinn til bana eftir sjö mánaða leit Straumhvörf sögð handan við hornið Hótar gjöreyðileggingu raforkuvera og olíulinda Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Lokar lofthelgi fyrir bandarískum herflugvélum Segir stjórnarskiptum hafa verið náð Noregur lækkar gjöld á bensín og dísilolíu Grátbað Epstein um að sofa hjá fyrirsætu Frílystaði sig í Mexíkó á bótum Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Skömm, reiði og áfall „Aumkunarverðasti og óheiðarlegasti lygari heims“ Elísabet varaði Harry við Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Dró til tíðinda í sjónvarpsútsendingu Sýkn af að nauðga hundrað ára gamalli konu Úkraínumenn biðja Finna afsökunar Nýjast á mbl.is » Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung Stöðvar framkvæmdir Trumps á Hvíta húsinu „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Sif Atladóttir lætur í sér heyra Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar „Mars 2026 fer í sögubækurnar“ Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Mest lesið Í gær Í vikunni Trump: Sækið ykkar eigin olíu Hamas fögnuðu ákvörðun Íslands og Hollands Reiðubúinn að binda enda á átök þótt Hormússund verði áfram lokað Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Biðlar til Trump: „Þú getur það“ Lýðveldissinnar reyndu að sprengja lögreglustöð Réðust á olíuflutningaskip frá Kúveit ESB hvetur fólk til að vinna heima og keyra minna Senda mannað geimfar í átt að tunglinu Hegseth: Næstu dagar verða afgerandi Úkraínumenn biðja Finna afsökunar Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Stöðvuðu eldflaug á leið til Tyrklands Flóttamaður skotinn til bana eftir sjö mánaða leit Straumhvörf sögð handan við hornið Hótar gjöreyðileggingu raforkuvera og olíulinda Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Lokar lofthelgi fyrir bandarískum herflugvélum Segir stjórnarskiptum hafa verið náð Noregur lækkar gjöld á bensín og dísilolíu Grátbað Epstein um að sofa hjá fyrirsætu Frílystaði sig í Mexíkó á bótum Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Skömm, reiði og áfall „Aumkunarverðasti og óheiðarlegasti lygari heims“ Elísabet varaði Harry við Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Dró til tíðinda í sjónvarpsútsendingu Sýkn af að nauðga hundrað ára gamalli konu Úkraínumenn biðja Finna afsökunar

Share this article