- What: NASA is conducting training for astronauts preparing for a moon mission.
- Impact: This is part of the broader Artemis program aimed at returning humans to the moon.
Tækni & vísindi | mbl | 1.4.2026 | 14:15 Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Geimfararnir sem æfðu sig fyrir tunglferðina hér á landi munu kveðja jörðina að sinni í kvöld og halda á sporbaug um tunglið. Samsett mynd/AFP/Jim Watson/NASA/Robert Markowitz Setja bókamerki Tengdar fréttir Artemis-geimáætlunin Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Senda mannað geimfar í átt að tunglinu 378 dagar á „Mars“ – „Eruð þið tilbúin að koma út?“ Geimfarar lendi ekki á tunglinu fyrr en 2026 DNA úr skapara Star Trek á leið til Tunglsins » Fleiri tengdar fréttir „Svart og grátt set teygir sig svo langt sem augað eygir. Hnullungar hvíla ofan á gróðursnauðri jörðinni, og manneskjurnar virðast agnarsmáar í samanburði við drungaleg hamrabeltin. Við fyrstu sýn virðist þetta vera dæmigert augnablik úr leiðangri á yfirborði tunglsins … nema hvað fólkið er í göngufatnaði, ekki geimbúningum.“ Svo hefst umfjöllun Geimferðastofnunar Bandaríkjanna (NASA) um æfingar tilvonandi tunglfara sem haldnar voru á Íslandi sumarið 2024. Þessir sömu geimfarar munu í kvöld kveðja jörðina að sinni og leggja af stað í sögulegan tunglleiðangur sem verður sá fyrsti til tunglsins síðan árið 1972 og miðar að því að hefja nýjan kafla í sögu geimferða mannkyns – ef allt fer að óskum. Frétt af mbl.is Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Christina Koch er ein þeirra geimfara sem halda munu út í geim innan nokkurra klukkustunda. Ljósmynd/NASA/Robert Markowitz Ísland einna líkast tunglinu Ísland hefur þjónað sem staðgengill tunglsins á jörðu niðri við þjálfun geimfara NASA allt frá dögum Apollo-leiðangranna á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, og í undirbúningi fyrir tilvonandi Artemis-leiðangra fetaði áhöfnin á Artemis-2, sem taka mun á loft frá Flórída klukkan 18.24 í kvöld (22.24 að íslenskum tíma), í fótspor Apollo-geimfaranna í vettvangsþjálfun á Íslandi. „Apollo-geimfararnir sögðu það sjálfir að Ísland væri einn af þeim stöðum sem líktust tunglinu hvað mest af þeim stöðum sem þeir undirbjuggu sig á,“ sagði Cindy Evans, yfirmaður jarðfræðiþjálfunar Artemis-áætlunarinnar, innt útskýringar á því hvers vegna Ísland hefði orðið fyrir valinu. Eldvirkni Íslands gerir það að verkum að þær bergtegundir sem hér fyrirfinnast eru svipaðar þeim sem fyrirfinnast á tunglinu, og þá sérstaklega bergtegundirnar basalt og þursaberg sem finnast hér á landi í ríkum mæli. Reynsla á Íslandi nýtist í geimnum Þrátt fyrir að geimfararnir muni ekki lenda á tunglinu að þessu sinni, heldur muni geimflaugin einvörðungu ferðast hringinn í kring, mun reynsla þeirra frá Íslandi skipta sköpum þegar kemur að því að ná fram rannsóknarmarkmiðum leiðangursins. Þau markmið fela það í sér að grannskoða yfirborðseinkenni tunglsins, svo sem gíga, af sporbaug og rannsaka smáatriði á borð við lit, endurskin og áferð, sem kynnu að leiða jarðsögu tunglsins í ljós. Þá gæti reynslan jafnframt gagnast í framtíðarleiðöngrum til tunglsins sem fyrirætlaðir eru á næstu árum. Meðal markmiða slíkra leiðangra er uppbygging bækistöðvar NASA á tunglinu sem ætlað er að nýtast til rannsókna á tunglinu, sem og að gegna hlutverki við væntanlega för Bandaríkjamanna alla leið til reikistjörnunnar Mars. Frétt af mbl.is Bandaríkin afhjúpa áætlanir um tunglbækistöð Tengdar fréttir Artemis-geimáætlunin Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Senda mannað geimfar í átt að tunglinu 378 dagar á „Mars“ – „Eruð þið tilbúin að koma út?“ Geimfarar lendi ekki á tunglinu fyrr en 2026 DNA úr skapara Star Trek á leið til Tunglsins » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Sögðu honum að snúa aldrei aftur til Ítalíu “There’s always a spirit of love at the Blues Festival” Leik í Bestu deildinni flýtt Svona verður veðrið um páskana Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Þegar kallað er eftir samstöðu í stað umræðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt „Innviðaskuldin er svo mikil“ Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Mest lesið Í gær Í vikunni Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun Þriðjungur enn með Windows 10 Nýjast á mbl.is » Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Sögðu honum að snúa aldrei aftur til Ítalíu “There’s always a spirit of love at the Blues Festival” Leik í Bestu deildinni flýtt Svona verður veðrið um páskana Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Þegar kallað er eftir samstöðu í stað umræðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Flutti umtalsvert magn fíkniefna með Norrænu „Erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar“ Tilbúinn í samstarf við alla flokka Mest lesið Í gær Í vikunni Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun Þriðjungur enn með Windows 10