Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samstarf Íslands við NASA felur þetta í sér

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.4.2026 | 21:20 Svona hljóðar samstarf Íslands við NASA Jörðin yfir bognum jaðri tunglsins kl. 18.41 EDT, sem er klukkan 22.41 á íslenskum tíma, þann 6. apríl 2026, séð frá Orion-geimfarinu. AFP/NASA Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Artemis-leiðangur NASA til tunglsins „Næsta skref er Mars“ Geimfarið lenti án vandræða Styttist í heimkomu: Hitaskjöldurinn nauðsynlegur Djúpstæð upplifun og sönn gjöf Úrin sem fóru út í geim með Artemis » Fleiri tengdar fréttir Ísland tekur þátt í rannsókna- og vísindastarfsemi á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA á grundvelli Artemis-samkomulagsins, Artemis Accords, sem Ísland undirritaði 10. október 2023. Þessi alþjóðlegi rammasamningur, sem leiddur er af NASA og byggir á geimferðasamningi Sameinuðu þjóðanna frá 1967, kveður á um friðsamlega nýtingu geimsins og tunglsins og leggur áherslu á opna gagnaöflun í vísindastarfi, björgun geimfara, skráningu geimhluta og sjálfbæra nýtingu auðlinda á tunglinu og Mars. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, til ríkisstjórnarinnar. Þar kemur fram að samkomulagið hafi verið kynnt með minnisblaði á ríkisstjórnarfundi þann 7. nóvember 2023. Í minnisblaðinu hafi komið fram hvaða ávinningur gæti orðið af þátttöku Íslands á sviði jarðfræði, verkfræði, upplýsingatækni, efnafræði og fleiri greina. Jörðin séð út um glugga Orion-geimfarsins, mynduð af NASA-geimfaranum Reid Wiseman, leiðangursstjóra Artemis 2, þann 2. apríl 2026. AFP/NASA/Reid Wiseman Viðræður um endurnýjun samstarfssamnings Vísindamenn á vegum NASA hafa í samstarfi við íslenska vísindamenn stundað rannsóknir hér á landi í mörg ár og meðal annars fylgst náið með þróun lífs í Surtsey. Í ágúst munu 50-60 starfsmenn NASA sækja Ísland heim vegna sólmyrkvans. Fyrirhugaður er fundur yfirmanna úr þessum hópi með menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, þar sem samstarfið á grundvelli Artemis verður meðal annars rætt. Þar að auki er ráðuneytið að undirbúa viljayfirlýsingu um frekara samstarf. Viðræður standa yfir við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands um endurnýjun samstarfssamnings um aðkomu skólans, bæði að Artemis og á öðrum sviðum geimrannsókna. Þessu tengdu hlutu Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Listaháskóli Íslands í samvinnu við Geimvísindastofnun Íslands styrk úr Samstarfi háskóla árið 2024 til að stofna rannsóknastofnun í geimvísindum (IRISS). Frétt af mbl.is Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Einstakar umhverfisaðstæður Íslands Hvað varðar rannsóknir á þessu sviði hefur Ísland margt fram að færa. Einstakar umhverfisaðstæður landsins með basalthelluhrauni, gjóskusvæði, gígamyndunum og hrjóstrugu eldfjallalandslagi líkjast yfirborði tunglsins og nýtast vel til rannsókna og þjálfunar geimfara í að lesa og lýsa landslagi. Geimfararnir í Artemis 2 komu hingað til lands til æfinga sumarið 2024. Artemis 3 er nú í undirbúningi þar sem mannað geimfar verður sent til tunglsins. Þar munu geimfararnir athafna sig við rannsóknir á yfirborði tunglsins í fyrsta skipti síðan 1969, þegar fyrsta mannaða geimfarið lenti á tunglinu. Í minnisblaðinu segir að mikilvægt sé að leggja aukna áherslu á þátttöku Íslands í rannsókna- og vísindastarfi á sviði geimmála sem falli vel að áherslum á STEM-greinar í atvinnustefnu fyrir Ísland og gildandi nýsköpunarstefnu stjórnvalda. Frétt af mbl.is Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Artemis-áætlunin á að ryðja brautina fyrir tungllendingu árið 2028. AFP/NASA Varanleg viðvera á tunglinu og leiðangur mannkyns til Mars Samningurinn er röð tvíhliða milliríkjasamninga milli Bandaríkjanna og annarra þátttökuríkja. Yfir 60 ríki hafa undirritað samninginn, þar á meðal Japan, Kanada og fjöldi Evrópuríkja. Samkvæmt áliti frá utanríkisráðuneytinu felur aðild að samkomulaginu ekki í sér þjóðréttarsamning og var því ekki metin þörf á aðkomu eða umboði þess ráðuneytis þegar samkomulagið var undirritað. Artemis-áætlunin er ekki tímabundin eins og Appolo-áætlunin var á sínum tíma. Það helgast meðal annars af því að markmið Artemis er varanleg viðvera á tunglinu, sem er hluti af undirbúningi leiðangurs mannaðs geimfars til Mars. Frétt af mbl.is „Næsta skref er Mars“ Tengdar fréttir Artemis-leiðangur NASA til tunglsins „Næsta skref er Mars“ Geimfarið lenti án vandræða Styttist í heimkomu: Hitaskjöldurinn nauðsynlegur Djúpstæð upplifun og sönn gjöf Úrin sem fóru út í geim með Artemis » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Stjarnan áfram í efstu deild eftir endurkomu Samstarf Íslands við NASA felur þetta í sér Skuldir á hvern íbúa hafi hækkað um 716.000 krónur Mörkin komu í seinni hálfleik í Kópavogi Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhrif olíuverðhækkana koma þungt fram Vesturlandsvegur skal varinn Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Stjarnan áfram í efstu deild eftir endurkomu Samstarf Íslands við NASA felur þetta í sér Skuldir á hvern íbúa hafi hækkað um 716.000 krónur Mörkin komu í seinni hálfleik í Kópavogi Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi „Betur má ef duga skal“ Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Hvað er í gangi? Hversu mikið meira þolum við?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article