Donald Trump segist verða viðstaddur munnlegan málflutning fyrir hæstarétti Bandaríkjanna í dag vegna tilskipunar hans um brottfellingu laga um að nær öll börn fædd þar fái sjálfkrafa ríkisborgararétt. „Ég ætla að mæta,“ sagði Trump aðspurður við fréttamenn í gær. Hann undirritaði á fyrstu dögum síðari forsetatíðar sinnar tilskipun um að sjálfkrafa ríkisborgararéttur taki ekki til barna fólks sem hefur tímabundna vegabréfsáritun eða telst hafa ólöglega dvöl í Bandaríkjunum. Stjórnarskrárákvæðið tekur ekki til erlendra sendiráðsstarfsmanna og fullvalda ættbálka frumbyggja. Málið er sögulegt enda hafa bæði alríkis- og áfrýjunardómstóll ógilt tilskipunina og sagt hana stangast á við borgaraleg réttindi tryggð í 14. viðauka stjórnarskrárinnar. Þau réttindi gæti forseti ekki afturkallað með tilskipun. Hæstiréttur hafnaði svo þröngri skilgreiningu árið 1898 í máli manns af kínversku foreldri fædds í Bandaríkjunum, sem var meinað að snúa aftur eftir stutta dvöl í Kína. Dómsmálaráðuneytið áfrýjaði málinu með þeim rökum að tilskipunin væri mikilvægur hluti tilrauna Trumps til að bæta innflytjendakerfið og taka á neyðarástandi við suðurlandamæri Bandaríkjanna. Það er einnig sögulegt að sitjandi forseti sé viðstaddur málflutning á vegum einhvers ráðuneyta hans. Sex af níu dómurum hæstaréttar teljast íhaldssamir og þrjá þeirra tilnefndi Trump. Greinendur telja þó ólíklegt að dómararnir úrskurði stjórninni í vil, enda gæti það valdið miklum usla varðandi borgararéttindi milljóna Bandaríkjamanna.