Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjaforseti fyrirskipar birtingu skjala um óþekkt fljúgandi fyrirbæri

  • What: Former U.S. President Donald Trump has reportedly ordered federal agencies to review and release all documents and information related to unidentified flying objects (UFOs) and extraterrestrials.
  • Impact: The order follows public interest in the subject, though it is unclear if the documents will be made publicly accessible.
Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa skipað alríkisstofnunum, meðal annars varnarmálaráðuneytinu, að yfirfara og birta öll gögn og upplýsingar sem tengjast óþekktum fljúgandi fyrirbærum og geimverum. Trump sagði í færslu á Truth Social gríðarlegan áhuga fólks á þessum fyrirbærum kveikjuna að fyrirskipuninni en tilgreindi ekki hvort skjölin yrðu aðgengileg almenningi. Málefnið væri þó flókið og sérstaklega áhugavert. Skömmu áður hafði Trump sagt forverann Barrack Obama hafa ljóstrað upp um ríkisleyndarmál þegar hann sagði í hlaðvarpsþætti engar geimverur faldar á því háleynilega Svæði 51 í Nevada, líkt og löngum hefur verið haldið fram. Lífseigasta sagan er að þar sé að finna líkamsleifar geimvera sem brotlentu í Roswell í Nýju Mexíkó árið 1947. „Það er ekkert neðanjarðarsvæði. Nema að samsærið sé svo umfangsmikið að því sé haldið frá forseta Bandaríkjanna,“ sagði Obama en kvaðst þó fullviss um að vitsmunalíf væri að finna utan jarðarinnar þótt hann hefði aldrei séð geimverur sjálfur. Trump tíundaði ekki hvað af orðum Obama væri leyndarmál en sagði hann hafa gert mikil mistök, hann ætti ekki að láta svona nokkuð út úr sér. Aðspurður kvaðst Trump ekkert vita hvort geimverur væru raunverulegar eður ei. Áhugi á óþekktum fljúgandi farartækjum hefur vaxið mikið í Bandaríkjunum á undanförnum árum eftir að tilkynningum um slíkt tók að fjölga. Stjórnvöld óttast helst að helstu andstæðingarnir séu að prófa háþróaða tækni. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna sagði hins vegar í skýrslu árið 2024 að engar sannanir væru um að ókennileg farartæki sem fólk sæi á himni væru frá öðrum hnöttum, það væru yfirleitt veðurbelgir, njósnaflugvélar, gervihnettir eða annað auðútskýranlegt.

Share this article