Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.4.2026 | 8:00 Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Gunnlaugur Már Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara. mbl.is/Sigurður Bogi Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki „Það er ljóst að við munum þurfa að hafa mjög skýra forgangsröðun í okkar þjónustu,“ segir Gunnlaugur Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara. Breytingar sem gerðar voru er samningar sjúkraþjálfara við Sjúkratryggingar Íslands voru undirritaðir árið 2024 hafa bætt aðgengi að þjónustu sjúkraþjálfara verulega. Samningarnir fólu í sér að viðbótargjöld vegna samningsleysis voru felld niður og gjaldskrár uppfærðar sem hefur gert fleirum kleift að sækja þjónustuna. Biðlistar hafa aftur á móti lengst og nú er áætlað að minnst 7-8 þúsund einstaklingar séu virkir á biðlistum eftir þjónustu. Gunnlaugur segir að biðtími eftir sjúkraþjálfun geti verið misjafn en ekki sé óalgengt að fólk þurfi að bíða í 3-6 mánuði þegar viðkomandi er ekki í miklum forgangi. Mikil áhersla sé á forgangsröðun í þjónustu við börn og einstaklinga eftir aðgerðir, t.a.m. þar sem mikilvægt er að hefja endurhæfingu strax. „Það er ekki til nein praktísk lausn til að leysa biðlistamálin. Frá því að við sömdum árið 2024 hafa fleiri einstaklingar getað sótt þjónustuna, einkum þeir sem eru tekjulágir eða þurfa viðvarandi þjónustu.“ Hann segir að á síðustu tveimur árum hafi aukning þjónustu nánast eingöngu verið vegna aukinnar þjónustu við ellilífeyrisþega og þá sem eru á örorku- eða endurhæfingarlífeyri og að það sé algerlega í samræmi við áherslur stjórnvalda. „Á sama tíma hefur þjónusta við aðra hópa staðið í stað, sem þýðir að hver og einn einstaklingur hefur fengið færri skipti til að hægt sé að koma fleirum að.“ Gunnlaugur kveðst hafa áhyggjur af framtíð þjónustunnar þar sem ekkert skýrt komi fram í fjármálaáætlun um frekari styrkingu, jafnvel gæti verið að framlög myndu dragast saman. „Enn fremur hefur lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um sjúkratryggingar, sem mætt hefur verulega harðri gagnrýni heilbrigðisstarfsmanna og myndi valda óvissu um þjónustuna, ekki verið breytt enn og veldur það mjög mikilli óvissu fyrir okkur. Það er kominn tími til að skapa vinnufrið fyrir sjúkraþjálfara og annað heilbrigðisstarfsfólk til að sinna þjónustu við almenning.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Með háleit framtíðarmarkmið Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Kynþokkafull á ströndinni með nýja hárgreiðslu Olíuverð lækkar eftir ummæli Trumps „Yfirgefum Íran mjög fljótlega“ Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Nærri 30.000 manns skrifað undir Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni Andlát: Elías Héðinsson Alelda bíll við Árbæjarkirkju Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung Miðlar skila­boðum á milli hins jarðneska lífs og hand­an­heima Sigurður Líndal leiðir Framsókn í Húnaþingi vestra Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana „Skynja rosalega mikla reiði“ Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Með háleit framtíðarmarkmið Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Kynþokkafull á ströndinni með nýja hárgreiðslu Olíuverð lækkar eftir ummæli Trumps „Yfirgefum Íran mjög fljótlega“ Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Flutti umtalsvert magn fíkniefna með Norrænu Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni Andlát: Elías Héðinsson Alelda bíll við Árbæjarkirkju Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung Miðlar skila­boðum á milli hins jarðneska lífs og hand­an­heima Sigurður Líndal leiðir Framsókn í Húnaþingi vestra Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana „Skynja rosalega mikla reiði“ Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article