Uppkomin börn konu sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segja að gögn úr kvörtunarmáli sem þau höfðu frumkvæði að nýtist ekki við saksókn gegn lækni sem ákærður var fyrir manndráp vegna lagabreytinga. Beggi Dan Gunnarsson, Borghildur H. Hauksdóttir, Eva Hauksdóttir og Hugljúf Dan Jensen eru börn Dönu Jóhannsdóttur sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019. Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir hefur verið ákærður fyrir manndráp vegna dauða hennar. Hann sætti rannsókn vegna gruns um að bera ábyrgð á dauða sex sjúklinga sinna en mál fimm þeirra voru felld niður. Systkinin sendu í dag frá sér yfirlýsingu þar sem þau gagnrýna lagabreytingu sem bannar lögreglu að nota rannsóknargögn frá landlæknisembættinu við rannsókn sakamála. Þau segja að það sé bagalegt í þessu máli þar sem gögn kvörtunarmáls þeirra fari því forgörðum, gögn sem þau segja hafa mikilvægt sönnunargildi. Þau finna einnig að því að Skúli Tómas hafi starfað sem læknir á Landspítalanum þar til honum var birt ákæra. Skúli Tómas brást við ákærunni í dag með færslu á Facebook-síðu sinni. Færslan er ekki opin en Vísir greindi frá því að Skúli segðist eiga erfitt með að skilja ákvörðunina. „Málið snýst um flókin læknisfræðileg atriði. Það er eðlilega erfitt fyrir ákæruvaldið að átta sig vel á slíku. Núna verður þó loksins hægt að fara yfir þetta heildstætt.“ Börn hinnar látnu andmæla þessum orðum hans sem óttalegri þvælu og segja að löngu sé búið að fara heildstætt yfir málið á þeim fimm árum sem það hafi verið í rannsókn hjá lögreglu og héraðssaksóknara.