Evrópusambandið hvetur nú fólk til að draga úr akstri og fækka flugferðum þar sem síðustu sendingar af dísilolíu og flugeldsneyti frá Mið-Austurlöndum munu berast til Evrópu á næstu dögum. Dan Jørgensen, orkustjóri ESB, hefur varað við að Evrópa horfi fram á efnahagslegt áfall sem ekki sjái fyrir endann á. Hann hvatti stjórnvöld til að íhuga neyðaraðgerðir til að stuðla að minni notkun eldsneytis. „Vinnið heima ef mögulegt er, lækkið hámarkshraða á þjóðvegum, hvetjið til notkunar almenningssamgangna […] Því meira sem við getum gert til að spara olíu, sérstaklega dísilolíu og flugeldsneyti, því betra,“ sagði Jørgensen eftir fund með ráðherrum ESB ríkja í gær. Í umfjöllun The Telegraph er bent á að áætlað sé að olíuflutningaskipið STI Sloane komi til Rotterdam 10. apríl með farm af dísilolíu, og að Rong Lin Wan skipið mun koma með flugeldsneyti nokkrum dögum síðar. Útlit sé hins vegar fyrir að engir frekari olíuflutningar muni berast frá Persaflóanum í nokkrar vikur eftir það. Jafnvel þótt Hormússundið myndi opnast fljótlega á ný myndi það taka einn til tvo mánuði að koma hreinsunarstöðvum aftur í gang og hefja flutninga á tankskipum á ný. Greinandi á olíumörkuðum hjá Wood Mackenzie sagði að Evrópa stæði frammi fyrir skorti á flugeldsneyti sem nemur 200.000 tunnum á dag í apríl, eða sem samsvarar tæplega fjórðungi af heildareftirspurn. Greinandi hjá JPMorgan sagði að eins og í Covid-faraldrinum muni afleiðingar stríðsátaka í Miðausturlöndum fara stigmagnandi fremur en að koma fram allar í einu. Evrópa muni líklega finna fyrir áhrifunum um miðjan apríl í kjölfar þess að síðasta lestunin frá því febrúar er búinn að skila sér til Rotterdam.