Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Evrópskir flug­vellir vara við skorti á flug­elds­neyti

Read Full Article →

Evrópskir flugvellir standa frammi fyrir „kerfisbundnum“ skorti á flugvélaeldsneyti ef Hormússundið verður ekki opnað að fullu innan þriggja vikna. Þetta segja ACI Europe, samtök evrópskra flugvalla. Samtökin segja að birgðir af flugvélaeldsneyti séu orðnar litlar og að áhrif stríðsátaka í Miðausturlöndum á eftirspurn væru farin að setja frekari þrýsting á framboð. Í bréfi sem Financial Times hefur undir höndum vara samtökin Apostolos Tzitzikostas, samgöngustjóra ESB, við auknum áhyggjum flugvallaiðnaðarins um aðgengi að flugvélaeldsneyti og tala fyrir fyrirbyggjandi aðgerðum og eftirliti af hálfu ESB. „Ef umferð um Hormússundið hefst ekki á ný með marktækum og stöðugum hætti innan næstu þriggja vikna mun kerfisbundinn skortur á flugvélaeldsneyti verða að veruleika hjá ESB,“ segir í bréfinu. ACI Europe benda á að það styttist óðum í háannatímann yfir sumarið sem auki frekar áhyggjur af stöðunni. Í umfjöllun FT er bent á að sum Asíulönd, þar á meðal Víetnam, hafi tekið upp á að skammta flugvélaeldsneyti vegna skorts. Í Evrópu hafi enn ekki orðið víðtækur skortur á eldsneyti, þó að eldsneytisverð hafi tvöfaldast og flugfélög hafi varað við mögulegri þörf á að aflýsa ferðum. Evrópsk flugfélög hafa gefið það út að þau ættu að hafa nægilega mikið eldsneyti fyrir næstu vikur, en að birgjar geti ekki tryggt afhendingar inn í maímánuð. Um síðustu helgi settu fjórir ítalskir flugvellir takmarkanir á notkun flugvélaeldsneytis eftir röskun á starfsemi hjá lykilbirgi vallanna. Sú takmörkun var ekki tengd beint við aðstæður í Persaflóa. Í bréfinu hvatti ACI Europe til samræmds eftirlits hjá ESB á framboði flugeldsneytis til að stuðla að samhæfum viðbrögðum iðnaðarins. „Eins og er er engin heildstæð kortlagning/mat eða vöktun hjá ESB á framleiðslu og aðgengi að flugvélaeldsneyti,“ segja samtökin. „Skortur á framboði myndi valda verulegum truflunum á starfsemi flugvalla og flugtengingum, með tilheyrandi hættu á alvarlegum efnahagslegum áhrifum fyrir þau samfélög sem þar snertir og fyrir Evrópu ef kerfisbundinn skortur á flugvélaeldsneyti verður að veruleika.“

Share this article