Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Búast við eldsneytisskorti innan fárra vikna

Read Full Article →

Evrópsk flugfélög gætu staðið frammi fyrir skorti á flugvélaeldsneyti innan nokkurra vikna ef olíuflutningar um Hormússundið hefjast ekki fljótlega á ný. Á vef New York Times segir að stríðið í Íran hafi þegar neytt flugfélög til að hækka flugfargjöld og draga úr framboði. Lággjaldaflugfélagið Ryanair greindi til að mynda frá því í vikunni að birgjar þess gætu aðeins tryggt eldsneyti fram yfir mestan hluta maí. Flugfélagið varaði við því að skortur gæti skapast á evrópskum flugvöllum ef lokun sundsins dregst á langinn. Evrópa er mjög háð innfluttu flugvélaeldsneyti þar sem fjölmörgum olíuhreinsunarstöðvum í álfunni hefur verið lokað undanfarna áratugi. Bretland, stærsti neytandi flugvélaeldsneytis í Evrópu, starfrækir til að mynda aðeins fjórar hreinsunarstöðvar miðað við 18 á áttunda áratugnum. Sjá einnig Yfir­vofandi olíu­skortur kallar á erfiðar ákvarðanir Samkvæmt gögnum frá fjármálafyrirtækinu Macquarie Group fara um 41% af öllu innfluttu flugvélaeldsneyti Evrópu í gegnum Hormússundið. Eldsneytisverð hefur einnig hækkað verulega frá upphafi átaka en samkvæmt S&P Global Platts er verðið nú um 80% hærra en fyrir stríð.

Share this article