Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eldsneytisstaða Icelandair enn góð

Read Full Article →

Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, segir birgðastöðu á flugvélaeldsneyti hjá félaginu vera góða. Mikil óvissa hefur verið meðal evrópskra flugfélaga og hefur Ryanair til dæmis sagt að birgjar þess geti aðeins tryggt eldsneyti út maímánuð. Hún segir í samtali við Viðskiptablaðið að fjölbreyttar flutningsleiðir séu einnig til boða fyrir eldsneytisbirgja Icelandair. „Við fylgjumst vel með þróun mála og erum í góðu sambandi við okkar birgja um stöðuna á hverjum tíma.“ Sjá einnig Búast við eldsneytisskorti innan fárra vikna Á vef BBC var greint frá því að Evrópa gæti staðið frammi fyrir skorti á flugvélaeldsneyti innan sex vikna. Um 41% af öllu innfluttu flugvélaeldsneyti Evrópu siglir í gegnum Hormússundið og hefur verð á flugvélaeldsneyti hækkað um 80% eftir að átökin í Íran hófust. Vitnað er í Fatih Birol, framkvæmdastjóra Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA), sem varar við því að staðan gæti náð vendipunkti strax í júní takist ekki að bæta upp að minnsta kosti helming þess innflutnings sem kemur frá Mið-Austurlöndunum.

Share this article