Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði á aðalfundi Icelandair í dag að árið 2026 fari vel af stað með sterkum farþegatölum, og bætti við að bókunarhorfur væru heilt yfir jákvæðar. „Við fylgjumst vel með þróun ytri aðstæðna en ljóst er að átökin í Miðausturlöndum skapa óvissu í alþjóða umhverfinu. Við sjáum þó engin áhrif á bókunarflæði á þessum tímapunkti en verð á flugvélaeldsneyti hefur hækkað verulega,“ sagði Bogi. „Eldsneytisvarnir okkar koma að hluta til á móti þessum sveiflum en höfum varið um 40% af áætlaðri eldsneytisnotkun út þetta ár.“ Sjá einnig Met í fjölda farþega hjá Icelandair í febrúar Fjallað er um áhrif hækkun eldsneytisverð á rekstur Icelandair í Viðskiptablaði vikunnar. Þar er m.a. rætt við Ívar S. Kristinsson, fjármálastjóra flugfélagsins, um áhrif átakanna í Miðausturlöndum á eldsneytisverð og flugframboð. Sjá einnig Icelandair og Eimskip finna fyrst fyrir högginu Dregið lítillega úr framboði til Norður-Ameríku Icelandair stefnir að því að auka flugframboð sitt um 2% í ár, að mestu utan háannatíma. Félagið mun því bjóða yfir sex milljónir sæta til yfir 60 áfangastaða og verða yfir 800 tengimöguleikar innan leiðakerfisins. Fjórir nýir áfangastaðir hafa verið kynntir – Feneyjar, Faro, Tromsö og Gdansk. Bogi sagði að miðað við núverandi markaðsaðstæður leggi Icelandair aukna áherslu á markaðina til og frá Íslandi á sama tíma og félagið tryggi áfram góðar tengingar í leiðakerfinu. Í því skyni hafi Icelandair dregið lítillega úr framboði til Norður-Ameríku en aukið áherslu á Suður-Evrópu og Skandinavíu. Flotinn að verða mun einfaldari Í ár verði um 90% af flugferðum félagsins flogin á nýrri kynslóð flugvéla sem séu miklu hagkvæmari hvað varðar breytilegan kostnað en eldri vélar. „Við höfum tekið ákvörðun um að í lok þessa árs munum við hætta rekstri 767 vélanna í farþegaleiðakerfinu og eftir sumarið 2027 fara 757 vélarnar jafnframt úr flotanum. Það eru því eitt og hálft ár í að flugflotinn verði mun einfaldari en hann er í dag og það mun stuðla að talsverðri hagræðingu í rekstri,“ sagði Bogi.