Nýtt skipurit Sjúkratrygginga tekur gildi í dag og taka Áslaug Hulda Jónsdóttir og Elmar Hallgríms Hallgrímsson við sem nýir framkvæmdastjórar hjá Sjúkratryggingum. Áslaug mun leiða nýtt svið þróunar og Elmar verður framkvæmdastjóri samninga. Framkvæmdastjórastöður fjármála og eftirlits og þjónustu hafa verið auglýstar en með breyttu skipuriti fækkar skipulagseiningum og framkvæmdastjórn er einfölduð. Sömuleiðis verða eðlislík verkefni sameinuð óháð fagsviðum og verður uppbygging áhættumiðaðs innra og ytra eftirlits aukin. Þá verða lykilhlutverk á sviði lögfræði og alþjóðamála styrkt og aukin áhersla lögð á þróun gervigreindar og stafrænna lausna. Samhliða verður fagleg samhæfing efld með nýjum hlutverkum fagstjóra og allar umsóknir um þjónustu og búnað unnar innan sama teymis. Áslaug Hulda býr yfir víðtækri reynslu úr rekstri, opinberri stjórnsýslu, stefnumótun og innleiðingu breytinga. Hún var framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar í tæpan áratug og aðstoðarmaður háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þar að auki sat hún í bæjarstjórn Garðabæjar í 12 ár, var forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs. Áslaug Hulda hefur verið í fjölda stjórna, starfshópa og nefnda samhliða störfum sínum en hún sat m.a. í stjórn Gildis lífeyrissjóðs, Viðskiptaráðs, SVÞ og var formaður Samtaka sjálfstætt starfandi skóla. Elmar er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með LLM-gráðu frá University of Pennsylvania í Bandaríkjunum. Hann lauk meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og viðskiptasiðfræði frá HÍ, einnig prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann hefur leyfi til að starfa sem héraðsdómslögmaður og hefur m.a. starfað í stjórnunarstöðu hjá Samiðn, Sýn, 365 miðlum og var um árabil lektor við Háskóla Íslands. Þar starfar hann nú samhliða starfi hjá Sjúkratryggingum sem stundakennari í viðskiptafræðideild og kennir m.a. samningatækni í MBA-námi HÍ, sem og við viðskiptafræðideild skólans.