Þrír nýir sviðsstjórar hafa verið ráðnir hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, sem stofnaðar voru 1. september í fyrra. Félagið mun þá taka við rekstri almenningssamgangna á svæðinu, strætisvagna og Borgarlínunnar, í byrjun júlí. Markús Vilhjálmsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri þjónustu og sölu en hann hefur starfað í sölu- og markaðsmálum hjá Strætó í um áratug, nú síðast sem sviðsstjóri sölu-, markaðs- og þjónustusviðs. Áður starfaði hann við sölu hjá Ferskfiski ehf. Hann er með M.Sc. í markaðsmálum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði frá Háskóla Íslands. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þróunar og skipulags. Hún er í dag stjórnarformaður Hopp Reykjavík og var áður framkvæmdastóri þar um árabil. Sjá einnig Frá Betri samgöngum í nýtt samgöngufélag Þar áður starfaði Sæunn á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar og á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og var stofnandi og framkvæmdastjóri Unique ehf. Hún er M.Sc. í stjórnun iðnaðar og nýsköpunar frá Uppsalaháskóla og B.Sc. í umhverfisfræði frá Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar. Arnar Freyr Vilmundarson hefur verið ráðinn sviðsstjóri innri þjónustu. Hann starfaði við fjármál hjá Marel í um 17 ár, síðast sem framkvæmdastjóri fjármála hugbúnaðarlausna og þar áður sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs fjármála. Hann er einn stofnenda Data Lab Ísland og situr í stjórn félagsins. Áður starfaði hann í fjárstýringu hjá Landsbankanum og var fjármálastjóri Gæðafæðis. Hann er M.Sc. í fjármálum frá Durham-háskóla og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og Carlo Cattaneo háskóla. Markús, Sæunn og Arnar munu sitja í framkvæmdastjórn félagsins ásamt Davíð Þorlákssyni, sem var ráðinn framkvæmdastjóri í janúar. Í tilkynningu segir að starfsfólk Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins verði um 30-40 manns og að áætluð velta verði um 19 milljarðar króna. Fjöldi ferða verði um 35.000 á dag en áætlað er að þær verði um 100.000 þegar Borgarlínan verður komin í fulla virkni árið 2040.