Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þorsteinn ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna

Read Full Article →

Stjórn Betri samgangna samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl síðastliðinn að ráða Þorstein R. Hermannsson sem framkvæmdastjóra Betri samgangna. Alls bárust níu umsóknir um starfið og var gengið frá ráðningu hans fyrir helgi. Starf framkvæmdastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars þegar Davíð Þorláksson lét af störfum til að taka við sem framkvæmdastjóri hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, nýju félagi sem tekur yfir rekstur og þjónustustýringu Strætó og mun síðar sjá um rekstur Borgarlínu. „Eftir vandað ferli undir stjórn VinnVinn var niðurstaða stjórnar að ráða Þorstein í starfið en hann kom best út í samanburði við aðra umsækjendur. Við bjóðum Þorstein velkominn til starfa hjá Betri samgöngum í þessu nýja hlutverki og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við hann og annað starfsfólk fyrirtækisins,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson, stjórnarformaður Betri samgangna. Sjá einnig Þrír nýir sviðs­stjórar hjá Al­mennings­sam­göngum höfuð­borgar­svæðisins Þorsteinn er með meistarapróf í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington og lauk B.Sc.-námi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað hjá Betri samgöngum frá árinu 2021 en var þar áður samgöngustjóri Reykjavíkurborgar frá 2016 til 2021. Þorsteinn hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi og samgönguverkfræðingur og starfaði um árabil hjá verkfræðistofunni Mannviti, meðal annars sem fagstjóri samgangna og sem sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs. Þá var Þorsteinn verkfræðingur samgönguáætlunar í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu árin 2010 til 2012.

Share this article