Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Metlöndunardagur í Grundarfirði

Read Full Article →

„Þetta er algjör metdagur,“ segir Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri í Grundarfirði, um mikla ásókn fiskiskipa í löndun í bænum á miðvikudag og aðfaranótt fimmtudags í síðustu viku. „Þetta voru um 615 tonn á 28 tímum,“ segir Hafsteinn. Skipin hafi komið hvert á fætur öðru og allt gengið mjög vel. „Þetta er nokkurn veginn tímasett og við vitum hversu lengi við erum að afgreiða hvert skip. Þetta er bara gaman.“ Tólf hundruð tonn á einni viku Spurður um ástæður þessara miklu anna í höfninni á stuttum tíma nefnir Hafsteinn að stefnt hafi í brælu daginn eftir. Mögulega hafi líka verið nauðsynlegt að koma afla þessara mismunandi útgerða sem áttu í hlut í vinnslu fyrir helgina og alla hafi vantað löndun. Hafsteinn segir að mikið hafi verið um að vera í Grundarfjarðarhöfn síðustu mánuði. Í síðustu viku einni hafi verið landað um 1.200 tonnum. Mestu ekið á brott „Janúar var stærstur með tæp þrjú þúsund tonn,“ segir Hafsteinn. Í slíkum mánuðum sé stærsta hluta aflans ekið út úr bænum til vinnslu annars staðar. Á þessum mánuðum sé normið hjá heimaflotanum á bilinu 1.000 til 1.200 tonn á einum mánuði. „Það eru margir bílarnir,“ segir hafnarstjórinn, sem aðspurður kveður færðina á stóra deginum í síðustu viku ekki hafa sett strik í reikninginn fyrir þessa flutninga. „Þeir svona rétt sluppu held ég.“ Stopp fram yfir páska Bílana segir Hafsteinn hafa farið með fisk í allar áttir. „Þetta var á Húsavík, Akureyri, Reykjavík og svolítið í skipin í Þorlákshöfn.“ Áhafnir þessara skipa segir Hafsteinn einfaldlega hafa hvílt sig í höfn. „Og það veitir ekkert af. Svo var bara farið strax eftir löndun,“ segir hann. Fram undan eru nokkur rólegheit í höfninni næstu daga. „Flotinn okkar er allur stopp fram yfir páska, netabátarnir eru að stoppa,“ segir Hafsteinn. Rólegt í strandveiðinni Eftir páska fer að styttast í strandveiðitímabilið en Hafsteinn segir ekki svo marga strandveiðibáta gerða út frá Grundarfirði nú orðið. „Við erum nú ekki stórir í strandveiðinni, erum með átján til tuttugu báta. Þegar þetta var að byrja var mjög mikið af strandveiðibátum fyrstu árin en svo hefur þetta haldist við um bil tuttugu báta síðustu fimm árin,“ segir hann. Afbókanir en samt met Um miðjan maí hefst svo tímabil skemmtiferðaskipanna í Grundarfirði og það nær fram yfir miðjan september. „Það er aðeins fjölgun hjá okkur frá fyrra ári en það er samt fækkun miðað við það sem var búið að bóka. Við vorum komnir langt yfir hundrað komur í bókanir en það eru 85 bókanir í dag,“ segir Hafsteinn. Það eru því ekki margir dauðir punktar sem fyrirsjáanlegir eru í Grundarfjarðarhöfn. „Þetta er bara mjög fínt, á þessu lifum við,“ segir hafnarstjórinn.

Share this article