Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Landanir hjá FISK í Grundarfirði og á Sauðaárkróki

Read Full Article →

Þrjú skip Fisk Seafod lönduðu ágætum afla í Grundarfirði og á Sauðárkróki í dag og í gær. Frá þessu segir á vef Fisk Seafood. „Farsæll SH 30 kom í land við Grundarfjarðarhöfn í gær og heildarmagn afla var um 68 tonn. Aflinn samanstóð af rúmum 22 tonnum af ýsu, um 16 tonnum af skarkola og um 15 tonnum af þorski, en minna magn af öðrum tegundum,“ segir á fisk.is . Voru mest við Flökin Farsæll hafi aðallega verið á veiðum við Flökin. „Þetta var bara draumatúr, veðrið gott og veiðin fín. Við þurftum ekki einu sinni að leita að fiskinum, vorum bara á sama stað allan tímann,” er haft eftir Guðmundi Kristjáni Snorrasyni skipstjóra. Síðan kemur fram að Sigurborg SH 12 hafi komið til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með 90 tonn af fiski. Aflinn hafi verið tæp 29 tonn af ýsu, tæp 23 tonn af skarkola og tæp 19 tonnum af þorski en minna í öðrum tegundum. Sigurborg hafi verið allan tímann á veiðum við Flökin, nema hafi rétt í lokin tekið hún eitt hal fyrir suð-vestan Bjarg. Veiðin hafi verið fín í þorski hjá Drangey SK Að lokum segir frá því að Drangey SK 2 hafi komið til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 117 tonna afla. Þar af hafi verið tæp 69 tonn af þorski og rúm 23 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. „Drangey var á meðal annars á veiðum við Þverálshorn, á kantinum vestan við Hala og Norður af Horni. Ágúst Óðinn Ómarsson skipstjóri sagði þetta hafa verið frekar tíðindalausan túr, en veiðin hafi verið fín í þorski og gengið vel að klára skammtinn þar, en minni skammtar í ýsu og öðrum tegundum,“ segir á fisk.is .

Share this article