Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Góður afli hjá Farsæl og Drangey

Read Full Article →

Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn á laugardag og löndun fór fram á sunnudag, í skipinu voru um 78 tonn, þar af um 25 tonn af ýsu, um 20 tonn af þorski og um 19 tonn af ufsa. Þá landaði Drangey SK 2 173 tonna afla í Grundarfirði í dag. Farsæll hóf veiðiferðina við Flákahorn en færði sig svo vestur fyrir Garðsskaga, þá á Jökultungu og enduðu túrinn á sunnanverðum Kanti. Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri, sagði í samtali við tíðindamann heimasíðu Fisk Seafood veiðiferðina hafa gengið vel. „Við byrjuðum við Garðsskaga og tókum þar ýsuna og það slæddist svolítið af þorski með. Svo enduðum við túrinn í karfa á Tungunni í blíðskaparveðri.” Farsæll SH. Mynd/Fisk Seafood Drangey SK 2 kom til löndunar í Grundarfirði í dag með 173 tonna afla. Mest var af ýsu, eða um 80 tonn, svo um 63 tonn af þorski og um 12 tonn af ufsa, en minna í öðrum tegundum. „Það var svolítill barningur, leitin að þorskinum, í þessum túr,” sagði Andri Már Welding, yfirstýrimaður. „Við byrjuðum á Eldeyjarbanka og þar var lítill þorskur svo við færðum okkur á Flugbrautina og tókum eitt hol þar, svo á Látragrunn en þar var sama sagan svo við færðum okkur aftur á byrjunarreit. Það var hinsvegar mjög góð ýsuveiði og veðrið var fínt.” Andri sagði að þorskurinn væri ennþá fyrir innan línu en það væri bara dagaspursmál hvenær hann færi að koma út fyrir, en það sem hann á við með því er að skip lengri en 42 metrar (Drangey er 62,55 m) mega ekki veiða á botnvörpu, flotvörpu eða dragnót innan ákveðinnar línu sem miðast yfirleitt við 12 sjómílna fjarlægð frá landi, en er nánar tilgreind í lögum um fiskveiðar. Þorskurinn hrygnir yfirleitt fyrir innan þessa línu og heldur sig þar á hrygningartímanum, en nú er þeim tíma lokið svo hann fer að færa sig út fyrir línuna aftur.

Share this article