Drangey SK 2 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn í morgun með heildarmagn afla upp á 100 tonn, þar af 70 tonn af þorski. Þetta kemur á vef Fisk Seafood, fisk.is . Þar segir að Drangey hafi meðal annars verið á veiðum við Víkurálsbotn og á Halanum og rætt er við Halldór Þorstein Gestsson skipstjóri um viðburðaríkan túr sem meðal annars bauð upp á sólarhringstöf vegna veiðarfæra sem fóru í skrúfuna eins sagt var frá á vef Fiskifrétta á föstudaginn. Skítabræla og fast í skrúfunni „Það var skítabræla í byrjun túrs og lítið um að vera. Svo lentum við í því að fá veiðarfærin í skrúfuna og vorum dregnir inn á Patreksfjörð. Þar voru tveir kafar í því að skera úr veiðarfærin og það gekk nokkuð fljótt. Vanir menn á ferð. En þetta kostaðu okkur rúman sólarhring frá veiðum,” er haft eftir Halldóri Þorsteini. „Þegar við komumst aftur af stað var komin bræla aftur og við fórum norður á Hala þar sem við kláruðum þorskskammtinn. Svo enduðum við á Skagagrunni þar sem lítið var um að vera,” bætti Halldór Þorsteinn við. Sigurbjörg landar tæpum 84 tonnum í Grundarfjarðarhöfn Þá kemur fram á vef Fisk Seafood að Sigurborg SH 12 hafi komið til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun. „Heildarmagn afla voru tæp 84 tonn, þar af um 25 tonn af ýsu, um 19 tonn af þorski, um 16 tonn af steinbít og um 11 tonn af skarkola. Sigurborg var meðal annars á veiðum vestan við Garðskaga og á Nesdýpi,“ segir á fisk.is .