Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Losuðu veiðarfæri úr Drangey SK

Read Full Article →

Skipstjóri Drangeyjar SK, ísfisktogara FISK Seafood á Sauðárkróki, hafði samband við Landhelgisgæsluna síðdegis á miðvikudag og óskaði eftir aðstoð í kjölfar þess að veiðarfæri festust í skrúfu skipsins sem var á veiðum um 25 sjómílur vestnorðvestur af Bjargtöngum. Varðskipið Þór sem var á siglingu í Breiðafirði var kallað út og kom á vettvang um fjórum klukkustundum síðar. Rétt fyrir miðnætti var línu skotið yfir í togarann og dráttartaug fest. Í kjölfarið var haldið áleiðis með skipið til Patreksfjarðar og ákveðið að senda kafara varðskipsins til að kanna aðstæður í birtingu. Næsta morgun hélt aðgerðin áfram og vel gekk að losa veiðarfærin úr skrúfunni. Að því búnu staðfestu kafararnir að skrúfan væri óskemmd og enginn leki sjáanlegur. Skipverjar á varðskipinu Þór aðstoða Drangey SK í vanda. Áhöfn togarans gat þá sleppt dráttartauginni og varðskipið hélt til annarra starfa eftir vel heppnaða aðgerð.

Share this article