Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Drangey fékk í skrúfuna og var dregin til hafnar

Read Full Article →

Drangavík VE fékk fyrir hádegi í gær veiðarfærin í skrúfuna þegar verið var að taka þau um borð eftir að híft hafði verið úr festu. Annar togvírinn hafði slitnað. Frá þessu er sagt á Facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar og þar kemur fram að Drangavík hafi verið á veiðum út af Vík í Mýrdal. Þinganes SF dró Drangavík til hafnar „Reynt var að losa veiðarfærin úr skrúfunni, en þegar það gekk ekki kom Þinganes SF frá Hornafirði til aðstoðar og dró Drangavík til hafnar í Vestmannaeyjum. Dráttarbáturinn Lóðsinn tók þar við og færði skipið að bryggju. Skrúfan var skoðuð strax við komuna með neðansjávarmyndavél og ljóst að um töluvert verk er að ræða við að skera veiðarfærin úr henni. Drangavík verður tekin upp í Skipalyftuna á morgun til að ljúka því verki og meta hvort skemmdir hafi orðið,“ segir í færslu Vinnslustöðvarinnar. Aldrei skapaðist hætta Drangey verður haldið til veiða um leið og skipið verður tilbúið. „Aldrei skapaðist hætta og vel gekk að komast til hafnar. Áhöfn Drangavíkur brást við af yfirvegun og fagmennsku. Vinnslustöðin þakkar áhöfn Þinganess og útgerð þess, Skinney-Þinganesi, fyrir veitta aðstoð, sem og áhöfn Lóðsins,“ segir að lokum á Facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar.

Share this article