200 mílur | Morgunblaðið | 21.3.2026 | 11:30 Bræla á miðunum og flotinn fór í var Mikill vindur var þegar Drangey fór í var í gær en þó var þar töluvert minni ölduhæð en vestan við landið. Ljósmynd/Guðmundur Ágúst Guðmundsson Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Haugabræla hefur verið á miðunum og þorri íslenska flotans þurfti að leita í var í gær. Þegar Guðmundur Ágúst Guðmundsson yfirstýrimaður svaraði í símann í brúnni á togaranum Drangey SK-2 var skipið í Reykjarfjarðarálnum norðaustan við Vestfirðina ásamt nokkrum öðrum skipum. „Það er bara vitlaust veður hérna þannig séð, það eru svona 25-32 metrar,“ segir Guðmundur. „Flotinn er hérna að toga en það er lítil veiði, þetta er alveg á mörkunum. Veiðin var allt í lagi í gærkvöldi og var svona tonn á tímann en núna er þetta komið niður í hálft tonn á tímann og minna. En við erum bara í vari og erum að drepa tímann.“ Þorri fiskiskipaflotans þurfti í gær að leita í var vegna haugabrælu. Meðfylgjandi kort sýnir staðsetningu og siglingu sumra þeirra. Áður en veður spilltist var Drangey að veiðum úti á Þverálshorni norður af Hornströndum. „Ef við værum þar núna þá væri það bara galið, þar er bara hátt í tíu metra alda núna. Þó að það sé vindur hérna þá nær hann ekki upp eins miklum sjó,“ útskýrir Guðmundur. „Það er svona kröpp alda þegar maður kemur hérna utan, ég fór aðeins út hérna áðan og það er bara hundleiðinlegt. Það er mikið skárra þegar maður kemur hérna nær, þá getum við að minnsta kosti verið að.“ Margir hinna togaranna sem biðu af sér veðrið í Reykjarfjarðarálnum höfðu siglt enn lengri leið en Drangey til að leita skjóls undan veðrinu. „Þeir voru í Flákanum eða Látragrunninu úti á Breiðafirði og það er náttúrulega ekkert hægt að vera þar núna þannig að þeir færðu sig hingað yfir líka,“ segir Guðmundur. Leiðindaveður fram yfir helgi Varðskipið Þór var einnig á Breiðafirði í óveðrinu, en aðfaranótt föstudags var skipið á leið til Reykjavíkur frá Ísafjarðardjúpi þar sem það hefur verið til taks vegna snjóflóðahættu. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir áhöfnina hafa fundið vel fyrir veðrinu en ölduhæð var um tíu metrar. „Það er náttúrulega bara búið að vera leiðindaveður, mikill vindur og sjólag umhverfis landið hefur ekki verið gott,“ segir hann og bætir við að Páll Geirsson skipherra Þórs hafi fylgst með bátunum tínast inn á Patreksfjarðarflóa á leiðinni frá Ísafirði strax að kvöldi 18. mars. „Þetta er búið að vera góður hvellur núna í veðrinu síðustu daga,“ segir Ásgeir. „Það er von á leiðindaveðri fram yfir helgi og við sjáum það í okkar kerfum að það eru fá skip á sjó,“ bætir hann við. „Í kerfum Landhelgisgæslunnar voru 79 skip á sjó og það er töluvert minna en var fyrir rúmri viku. Þá voru um 160 íslensk skip, þannig að veðrið hefur greinileg áhrif.“ Spurður að því hvenær líklegt sé að skipin fari að tínast aftur á miðin segir Ásgeir að ölduhæð verði töluverð fram á daginn í dag, laugardag, og veður verði áfram slæmt fram yfir helgi. „Menn skoða auðvitað sjóveðurspána en eins og alltaf hvetur Landhelgisgæslan sjófarendur til að sýna ýtrustu aðgæslu,“ áréttar Ásgeir að lokum. Stefna aftur á miðin Um borð í Drangey er stefnt að því að sigla aftur á gjöfulli mið seinnipart nætur. „Það á að hægja aðeins á Vestfjarðamiðum eftir hádegi á morgun en það tekur okkur svona 8-10 tíma að komast þarna út.“ Drangey er því líklega að fikra sig til baka um það leyti sem þetta blað ratar í gegnum lúgu. Guðmundur segir að veðrið breyti ekki áætlun Drangeyjar en stefnt er að því að landa á Sauðárkróki á mánudaginn. Guðmundur segir að þótt brælan hafi nú sett töluvert strik í reikninginn hafi veturinn verið góður heilt yfir. „Við erum búnir að vera rosalega heppnir með veður í vetur,“ segir hann. „Það er búið að vera alveg ótrúlega gott veður en svo fáum við þennan marsmánuð sem er helvíti leiðinlegur.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Leggja til könnunarveiðar á humri Ráðgjöf um stórþara gefin út í fyrsta sinn Hætta við stækkun vegna frumvarps Minni áhrif botnvörpu en talið var ESB setti samruna skorður Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Þrisvar landað fullfermi á nokkrum dögum Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Hætta við stækkun vegna frumvarps Minni áhrif botnvörpu en talið var Leggja til könnunarveiðar á humri ESB setti samruna skorður Þrisvar landað fullfermi á nokkrum dögum Gagnrýnir samkeppnislög og kolefnisgjöld Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Hætta við stækkun vegna frumvarps Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Gagnrýnir framkvæmd úttektar Fleira áhugavert Byggingin hönnuð til að gefa eftir Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 20.3.26 644,05 kr/kg Þorskur, slægður 20.3.26 772,20 kr/kg Ýsa, óslægð 19.3.26 482,80 kr/kg Ýsa, slægð 20.3.26 373,62 kr/kg Ufsi, óslægður 19.3.26 314,96 kr/kg Ufsi, slægður 19.3.26 385,88 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 20.3.26 314,00 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 20.3.26 Tjálfi SU 63 Þorskfisknet Þorskur 2.323 kg Samtals 2.323 kg 20.3.26 Háey I ÞH 295 Lína Þorskur 6.536 kg Ýsa 2.503 kg Steinbítur 364 kg Keila 332 kg Skarkoli 17 kg Langa 3 kg Karfi 1 kg Samtals 9.756 kg 20.3.26 Akurey AK 10 Botnvarpa Ýsa 49.142 kg Þorskur 22.427 kg Karfi 2.730 kg Steinbítur 1.098 kg Langa 282 kg Þykkvalúra 248 kg Skarkoli 232 kg Grásleppa 193 kg Ufsi 117 kg Skötuselur 11 kg Samtals 76.480 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Leggja til könnunarveiðar á humri Ráðgjöf um stórþara gefin út í fyrsta sinn Hætta við stækkun vegna frumvarps Minni áhrif botnvörpu en talið var ESB setti samruna skorður Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Þrisvar landað fullfermi á nokkrum dögum Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Hætta við stækkun vegna frumvarps Minni áhrif botnvörpu en talið var Leggja til könnunarveiðar á humri ESB setti samruna skorður Þrisvar landað fullfermi á nokkrum dögum Gagnrýnir samkeppnislög og kolefnisgjöld Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Hætta við stækkun vegna frumvarps Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Gagnrýnir framkvæmd úttektar Fleira áhugavert „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Holtavörðuheiði enn lokuð Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Chuck Norris látinn Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 20.3.26 644,05 kr/kg Þorskur, slægður 20.3.26 772,20 kr/kg Ýsa, óslægð 19.3.26 482,80 kr/kg Ýsa, slægð 20.3.26 373,62 kr/kg Ufsi, óslægður 19.3.26 314,96 kr/kg Ufsi, slægður 19.3.26 385,88 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 20.3.26 314,00 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 20.3.26 Tjálfi SU 63 Þorskfisknet Þorskur 2.323 kg Samtals 2.323 kg 20.3.26 Háey I ÞH 295 Lína Þorskur 6.536 kg Ýsa 2.503 kg Steinbítur 364 kg Keila 332 kg Skarkoli 17 kg Langa 3 kg Karfi 1 kg Samtals 9.756 kg 20.3.26 Akurey AK 10 Botnvarpa Ýsa 49.142 kg Þorskur 22.427 kg Karfi 2.730 kg Steinbítur 1.098 kg Langa 282 kg Þykkvalúra 248 kg Skarkoli 232 kg Grásleppa 193 kg Ufsi 117 kg Skötuselur 11 kg Samtals 76.480 kg Skoða allar landanir »