„Það er búið að vera mjög gott, það er ekkert hægt að kvarta,“ segir Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri á Farsæl SH 30, sem Fisk Seafood gerir út frá Grundarfirði. Síðasta hálfa mánuðinn segir Guðmundur Farsæl hafa verið á Selvogsbanka og á þeim slóðum að ná í þorsk fyrir vinnsluna hjá Fisk Seafood. Kominn hálfan mánuð fram yfir „Þorskurinn hefur verið svo lengi á leiðinni út fyrir línu að togararnir okkar eru að fá mjög lítið af honum,“ segir Guðmundur. Þorskurinn sé um hálfum mánuði seinni til að fara út fyrir línu en til dæmis í fyrra. „En það var mjög gott á Selvogsbanka. Við tókum tvo túra á innan við viku. Síðast vorum við út af Sandgerði í blöndu; ýsu og þorski og enduðum á Jökultungunni í karfa,“ segir Guðmundur. Voru lens í þorski Farsæll SH 30. Mynd/Vigfús Markússon Farsæll landar yfirleitt í Grundarfirði en landaði þó þorski í Þorlákshöfn eftir einn túr suður frá. „Þorskurinn er allur unninn í Grundarfirði og fyrir norðan hjá Fisk Seafood,“ segir Guðmundur. Yfirleitt sé Farsæll ekki í þorskveiðum heldur í „gramsi“ þar sem aflinn sé koli, steinbítur og ýsa. „En það kom fyrir um daginn að þá voru þeir bara alveg lens í þorski í vinnslunni, bæði í Grundarfirði og fyrir norðan. Þá vorum við sendir í þorsk til að ná því í gang. Og það gekk mjög vel enda er svo sem alveg nóg af þorski innan tólf mílnanna,“ segir Guðmundur. Ekki þessi stóri vertíðarþorskur Spurður um ástandið á þorskinum segir Guðmundur það vera ágætt. „Mér finnst hann reyndar á okkar svæði fyrir vestan vera blandaðri, ekki þessi stóri vertíðarþorskur. Hann á kannski eftir að koma út. Það er náttúrlega hellings fiskur sem á eftir að ganga út fyrir firðina. En það er óvenjulegt að sjá svona mikið af smærri fiski á okkar grunnslóðum.“ Guðmundur segist alls ekki halda að stofninn sé að skreppa saman þótt bið sé á því að hann sýni sig almennilega fyrir utan línu. „Nei, það er búin að vera hörkuveiði hjá þeim fyrir innan línu í net og snurvoð, að minnsta kosti ef ég tala fyrir Breiðafjörð,“ segir hann. Rútínan tekur við Nú segir Guðmundur fram undan hjá áhöfn Farsæls næstu vikurnar að halda sinni venjubundnu rútínu með veiðum vestur fyrir landinu, frá Reykjanesi og vestur á firði. „Við verðum að veiða á markað. Við setjum allt á markað nema þorsk sem fer í vinnslu hjá Fisk Seafood,“ segir hann. Ekki gott í kolanum Markmiðið segir Guðmundur vera að reyna við fyrrgreindar tegundir; steinbít, kola og ýsu. „Það hefur gengið svona ágætlega nema kannski í kolanum, það hefur ekkert verið neitt sérstakt í honum,“ segir hann. Eftir óvenjugóða tíð fyrstu tvo mánuði ársins seig á ógæfuhliðina í veðrinu. Mars var hryllilegur „Maður hélt nú bara að það væri að koma vor í febrúar en svo var mars alveg hryllilegur með brælum og það var erfitt að eiga við þetta. Svo hefur þetta verið að skána,“ segir Guðmundur, sem innan tíðar fer í sumarfrí með áhöfn sinni. „Við stoppum eftir sjómannadaginn fram í ágúst. Þá fara menn bara að leika sér og gera eitthvað annað.“