„Það er búin að vera ótrúlega góð ýsuveiði hérna en það er enginn þorskur,“ sagði Einar Ingþór Númason, skipstjóri á Sólbergi ÓF 1, þegar tal náðist af honum á Selvogsbanka á mánudaginn. Þetta sagði Einar eiga við um skip sem þá voru á bæði Tánni og á Selvogsbanka. „Það er eiginlega bara ýsa sem er í boði hérna. Bátarnir sem eru innar fá kannski einhvern þorsk með en það er mjög lítið af þorski utan við línu,“ sagði hann. Bara eiginlega ekki neitt Þó að ýsan væri ágæt kvað Einar menn að sjálfsögðu frekar vera á höttunum eftir þorski. „Við myndum nú gjarnan vilja fá þorskinn, það verður nú að segjast eins og er,“ sagði hann. Það hefði einfaldlega verið lítið af þorski. „Það er bara eiginlega ekki neitt undanfarna daga.“ Nýbúinn að hrygna Einar sagði lítið búið að vera af þorski fyrir vestan land yfirhöfuð. „Oftast er þorskurinn á Jökuldýpinu og við Snæfellsnesið á Flugbrautinni sem kallað er á þessum tíma en það er ekki komið neitt enn þá. Það var eitt skip fyrir austan sem fékk eitthvað af þorski. Það er það eina sem maður hefur frétt af þorskveiðum,“ sagði hann. Ekki væri gott að segja hvað lesa mætti úr þessu. Væri rétt nýbúinn að hrygna „Á þorskurinn ekki bara eftir að koma út? Þeir tala um það á litlu bátunum innan við að hann sé rétt nýbúinn að hrygna þessi fiskur sem þeir eru að fá þarna innan við,“ sagði Einar. Það væri því vonandi aðeins tímaspursmál hvenær þorskurinn gengi út. Ýsuna á hinn bóginn sem væri að fást sagði Einar vera fínasta fisk. Sólbergið landaði sínum afla í heimahöfn á Siglufirði að vanda. Hafa aðallegam verið á Eldeyjarbanka og á Tánni „Við eigum að vera í landi maí og fórum út 1. apríl,“ sagði Einar. Ekki væri hægt að segja að þeir hefðu farið víða í túrnum. „Við erum búnir að vera mest á þessu svæði, aðallega á Eldeyjarbankanum og á Tánni en líka á Selvogsbanka.“ Þetta hefði því verið talsverð yfirlega hjá Sólbergsmönnum. „En það vantar aðeins meiri þorsk,“ ítrekaði skipstjórinn. Svo var það bara búið Þeir hefðu fengið einhvern þorsk vestur af Látrabjargi þar sem þeir hefðu verið í tvo, þrjá daga. „Það var ágætis veiði á ákveðnum tímapunkti og svo var það bara búið. Við höfum ekki séð mikið síðan.“ Þetta sagði Einar reyndar ekki alveg fátíða stöðu á þessum árstíma. „Það var ekki mikið af þorski hérna í fyrra held ég á þessum tíma. En 2024 var góð veiði í þorski við Snæfellsnesið á þessum tíma akkúrat. Við höfum enn viku. Það er vonandi að það komi eitthvað.“