Eftir snjóléttan vetur var óvenju mikið um ófærð á fjallvegum í mars. Vegurinn um Dynjandisheiði var merktur ófær mikinn meirihluta mánaðarins. Beðið eftir mokstri Þónokkrir bílar biðu þess í gær, 1. apríl, að starfsmenn Vegagerðarinnar opnuðu veginn norður í Árneshrepp á Ströndum. Gengið hafði erfiðlega að moka síðustu daga þar sem það skóf mikið uppi á Veiðileysuhálsi. Mikið var um ófærð á fjallvegum í mars. Á Dynjandisheiði var lokað í lengri eða skemmri tíma 25 daga af 31. Vegurinn var merktur ófær tólf daga í mars, þar af í sex heila sólarhringa samfleytt seinni hluta mánaðar. Strandamenn hafa lengi kallað eftir að ráðist verði í framkvæmdir á veginum svo auðveldara verði að halda honum opnum á veturna. Vegurinn um Dynjandisheiði á Vestfjörðum var skráður ófær 25 daga af 31 í mars. Í öll skiptin nema tvö varði lokunin lengur en átta tíma. Tíu daga í mánuðinum var leiðin lokuð allan sólarhringinn. Á sama tímabili í fyrra var vegurinn skráður ófær 10 sinnum. Framkvæmdir standa yfir á síðasta malarkaflanum á veginum, en þær eiga að auðvelda vetrarþjónustu. Þá lokaðist Fjarðarheiði óvenju oft vegna óveðurs. Hún var merkt ófær um lengri eða skemmri tíma í átján daga. Þegar Fjarðarheiði lokast verða Seyðfirðingar innlyksa. Íbúar segja lokanir þungbærari eftir að Fjarðarheiðargöngum var seinkað.